Samantekt af WWDC 2019

Atli Stefán Yngvason fer yfir lyk­il­ræð­una á tækni­ráð­stefn­unni WWDC.

WWDC 2019
WWDC 2019 Mynd: Aðsend mynd

Apple mun upp­færa stýri­kerfi sín í haust, í kjöl­far sölu á nýjum símum. Haldin var yfir tveggja tíma lyk­il­ræða í vik­unni til að sýna hverju stýri­kerfin eiga von á. Þrjár stærstu frétt­irnar eru inn­skrán­ing með Apple, Mac Pro tölvan og Dark Mode.

iOS 13 - Dökkt viðmót og app uppfærslur

iOS er nú stýri­kerfi iPhone síma og iPod touch (sem var verið að upp­færa), en ekki lengur fyrir iPad spjald­tölvur. Stærsta breyt­ingin er undir húdd­inu og verður iOS13 mun hrað­ara en iOS12. FaceID til dæmis verður 30% hrað­ara en áður. Tæki frá iPhone 6S og iPad Air 2 munu upp­færslu í iOS13.

Næst stærsta breyt­ingin er að hægt verður að velja á milli tveggja við­móta: Það klass­íska ljósa og hið nýja dökka við­mót. Dökk við­mót hafa verið vin­sæl og í fyrra bauð Apple upp á „dark mode“ fyrir Mac-tölvur. Mörgum finnst dekkri við­mót vera þægi­legri fyrir augun og með OLED-skjám er hægt að ná niður raf­magns­notkun tæk­is­ins með dekkri pixlum ólíkt LCD-skjám.

[adspot]

iOS öpp frá Apple fá veg­legar upp­færslur. Rem­ind­ers fær nýtt við­mót þannig hægt er að for­gangs­raða verkum betur með tíma og flöggun. Maps fá mun nákvæm­ari kort og betri götu­sýn (vitum ekki hvort Ísland fái það).

Mail fær loks­ins að breyta letri og sniði pósta og mun styðja Rich Text Formatt­ing. Notes fær nýtt yfir­lit yfir glósur fyrir betri yfir­sýn. Safari getur svo stillt sig fyrir hvern vef og fær nú fullar útgáfur af vefjum á iPad. iMessage fer enn nær Whatsapp og nú verður hægt að setja prófíl-mynd.

Memoji stickers

Þau sem nota Memoji (svipað Bitmoji) með iPhone X eða iPhone XS, fá nú sjálf­krafa lím­miða­pakka.

Skautaðu á lyklaborðinu

Það verður loks­ins hægt að skauta („swipe-a“) orð á lykla­borð­inu með QuickPath, sem hefur lengi verið í boði með SwiftKey eða GBoard lykla­borð­unum. Þannig er hægt að mynda orð á skjótan máta með því að draga putt­ann yfir þá stafi sem mynda orðið. Lykla­borðið giskar svo á hvaða orð þú reyndir að draga út frá sam­hengi og fyrri notkun. Nokkuð snið­ugt, og mjög hratt.

iPadOS nú sérstakt stýrikerfi

iPad spjald­tölv­urnar hafa verið að fá aukna áherslu frá Apple og er Pro-línan þeirra hægt og rólega að nálg­ast far­tölvur í getu. Apple ætlar greini­lega að leggja enn meiri áherslu á iPad og fá spjald­tölv­urnar nú sitt eigið stýri­kerfi: iPa­dOS. Nýjungar í ár eru mikið til á skjá­borðum (sc. Það verður loks­ins í boði að setja tól (widget) á skjá­borð).

Slide-over eig­in­leik­inn kemur öppum til hliðar í nettri stiku til að auð­velda fjöl­verkun.

Penninn fær nýja tólastiku með nýju útliti og tölum. En lasso-tólið fékk að fjúka.

Með Side car verður hægt að varpa skjánum af Mac-tölvum yfir á iPad og nota spjald­tölv­una sem teikni­borð með Apple-penn­anum.

Undo, redo, copy og paste fá snertiflýti­að­gerðir sem virka alls staðar í stýri­kerf­inu. Notast er við þriggja fingra snertiflýti­að­gerð til að fram­kvæma þær aðgerðir. Það verður hægt að draga bendil­inn á auð­veld­ari máta, og velja svo texta með því að draga yfir hann með putt­anum (þarft ekki lengur að halda putt­anum yfir og bíða eftir stækk­un­ar­gler­inu). Það verður líka hægt að velja eitt orð með því að ýta tvisvar á það og velja setn­ingu með því að ýta þrisvar á hana.

Þetta er risa­stór upp­færsla fyrir iPad sem gerir spjald­tölv­urnar enn öfl­ugri. Stýri­kerfið fær flýti­lykla í gegnum það allt, mun styðja allar let­ur­gerðir og skrá­ar­kerfið (files) verður tekið á næsta stig.

WatchOS 6 bætir heilbrigði

Apple heldur áfram með „intelli­g­ent guar­dian“-hug­takið og bætir við nýjum eig­in­leikum til að fylgj­ast með og bæta heilsu. Ný öpp koma fyrir tíð­ar­hringi (Cycles) og lyfja­inn­töku (Dose). Hávaða­mælir verður í boði sem varar þig hávaða sem getur skemmt heyrn. En stærsta fréttin hér er að Apple Watch fær nú sína eigin app-verslun. Apple hefur líka gert mikið til að auð­velda þriðja aðila að þróa fyrir úrið og fara nú von­andi almenni­leg öpp að koma frá Spotify eða Audible.

Apple TV fyrir alla fjölskylduna

tvOS stýri­kerfið mun loks­ins styðja marga not­endur innan heim­ilis, eins og við þekkjum af Netflix. Apple TV mun geta tengst Xbox og Playstation 4 fjar­stýr­ingum fyrir tölvu­leikja­spilun. Það verður svo haugur af nýjum bak­grunnum, meðal ann­ars einn neð­an­sjávar.

MacOS fær fleiri öpp af iOS og iTunes deyr

MacOS Catalina fær fullt af nýjum öppum, en eitt hættir. Umdeilda appið iTu­nes fær að fjúka, og koma ný öpp í stað­inn. Apple Music fyrir tón­list, TV appið fyrir vidjó­leig­una, Podcast appið fyrir hlað­varp og Finder tekur að sér það sem teng­ist iPhone eða iPad. Notes, Rem­ind­ers og Safari fá upp­færslur í takt við iOS13 upp­færsl­una. Screen time kemur svo á MacOS til að hjálpa þér að skilja notkun þína í tölv­unni. Apple Watch mun geta veitt heim­ildir eins og lyk­il­orð með því að tvísmella á hlið­ar­takk­ann á úrinu. Radd­stýr­ing fær svo risa­stóra upp­færslu fyrir þau sem eiga erfitt með að nota lykla­borð eða mýs.

Ný Mac Pro tölva og skjár

Mac Pro eru tölvur í dýr­ari kant­inum sem hafa verið hugs­aðar fyrir þá sem þróa flókin kerfi eða smíða hágæða efni (myndir, mynd­bönd, tölvu­leikir). Apple gaf út síð­asta Mac Pro árið 2013, og er talið að hann hafi floppað sökum lélegrar hita­los­unar. Tölvan varð ein­fald­lega of heit og skjá­kortin brunnu reglu­lega yfir. Lítið var hægt að eiga við tölv­una, breyta og bæta. Nýja Mac Pro er allt öðru­vísi tölva og fer aftur ára­tug í hönnun í tölvu­turn­inn. Þetta er svaka­lega öflug tölva sem verður hægt að upp­færa í mörg ár með nýju inn­volsi. Tölvan mun lík­lega kosta í kringum milljón hér á landi og er hugsuð fyrir atvinnu­fólk.

Display Pro XDR - besti skjár­inn?

Apple er ekk­ert að grín­ast með þennan skjá. Viðmiðið þegar lagt var af stað var 43.000 doll­ara skjár frá Sony fyrir kvik­mynda­iðn­að­inn. Skjárinn er með 6K upp­lausn, 1000-1600 NITS-birtu­stig, 1.000.000:1 í birtu­skilum og 32” skjá­flöt. Hann er skarpur, bjartur og stór. Hann sýnir bestu mögu­legu útgáfu af HDR af öllum skjám á mark­að­inum. Bara stand­ur­inn kostar 999 doll­ara og skjár­inn kostar frá 4.990 doll­ara, eða nálægt milljón á Íslandi. Þessi skjár er fyrir mjög sér­hæfðan mark­hóp.

Innskráning með Apple

Það hefur lengi verið hægt að skrá sig inn í öpp, vef­síður og önnur kerfi með Facebook eða Google. Apple leggur gríð­ar­lega mikla áherslu á per­sónu­vernd, og munu not­endur fá að velja hvort net­fangið þeirra fari áfram til þess aðila sem er verið að skrá sig. Einnig mun verður hægt að nota TouchID eða FaceID til að skrá sig inn á þeim tækjum sem bjóða upp á þær leiðir.

Heimildir

https://www.apple.com/ios/ios-13-preview/

https://www.theverge.com/2019/6/3/18644510/apple-wwdc-2019-recap-top-news-ios-13-mac-pro-os-catalina-xdr-ipados-announcements-summary-updates

https://www.apple.com/ipados/ipados-preview/

https://www.apple.com/newsroom/2019/06/tvos-13-powers-the-most-personal-cinematic-experience-ever/

https://9to5mac.com/2019/06/03/sign-in-with-apple-requirement/

https://www.apple.com/macos/catalina-preview/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tæknimál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár