Umbylta þarf nálgun að menntamálum

Mikil og hröð inn­reið gervi­greindar kallar á end­ur­hugsun mennta­kerf­is­ins, segja sér­fræð­ingar sem The Economist ræddi við. Mikil þörf verður fyrir ýmsa manna­lega þætti skap­andi hugs­unar, í fram­tíð­inni.

Samhliða miklum upp­gangi auk­innar sjálf­virkni í atvinnu­lífi, meðal ann­ars með vax­andi notkun gervi­greindar, mun þörfin fyrir skap­andi hugsun og ýmis mann­leg atriði verða enn mik­il­væg­ari.

End­ur­hugsa þarf mennta­kerfið frá grunni og ýmsar grunn­hug­myndir, sem voru í brennid­epli fyrir iðn­bylt­ing­una, eru nú sprellif­andi á nýjan leik. Krefj­andi verður fyrir stjórn­mála­menn að skapa nýtt reglu­verk og stefnu í mennta- og vel­ferð­ar­málum, ekki síður í þró­un­ar­lönd­unum heldur en þeim sem rík­ari eru.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítar­legri grein í The Economist um þá bylt­ingu sem framundan er í atvinnu­málum í heim­inum, vegna inn­reiðar gervi­greindar og auk­innar sjálf­virkni.

Miklar breytingar

Í grein­inni kemur fram að aðferðir við að mennta fólk muni breyt­ast mikið, t.d. með auk­inni mynd­banda­notkun fyr­ir­lestra og betri aðgengi að gögnum. Þetta muni auka afköst mennta­kerf­is­ins og einnig gera það mögu­legt að leggja áherslu á réttu atriðin, jafn­vel þvert á landa­mæri og auknu sam­starfi háskóla.

Joel Mokyr, pro­fessor við Northwestern Uni­versity, segir í við­tali við The Economist að staðan nú minni um margt að stöðu mála í iðn­bylt­ing­unni og eftir stríðs­árin, þar sem miklar breyt­ingar sam­hliða auk­inni vél­væð­ingu umbyltu kennslu­að­ferðum og áherslum í stefnu­málum hjá stjórn­völdum.

Sífelld endurnýjun

Í grein­inni segir jafn­framt, að það sé fyrir löngu orðið ljóst að menntun þarfn­ast muni meiri end­ur­nýj­unar, heldur en oft er af látið, og próf­gráður muni ekki verða mik­ill mæli­kvarði á hæfi­leika í fram­tíð­inni, heldur frekar svotil stans­laus end­ur­nýjun á þekk­ingu.

Í náinni fram­tíð muni hins vegar reyna enn meira á þetta, og því meiri sveigj­an­leiki sem ein­stak­lingar búi yfir, því betra fyrir mögu­leika þeirra á vinnu­mark­aði fram­tíð­ar­innar.

Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskól­ans í Reykja­vík, fjall­aði um þessar miklu breyt­ingar sem framundan er í mennta- og atvinnu­málum, í Tækni­varp­inu í byrjun árs­ins. Hann sagði mögu­leik­ana sem muni leys­ast úr læð­ingi með auk­inni gervi­greind í reynd vera óend­an­lega, og sam­fé­lögin muni breyt­ast mikið og hratt á næstu árum og ára­tugum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tæknimál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár