Vélmenni fær ríkisborgararétt í Sádi-Arabíu

Vél­mennið Sophia hefur nú öðl­ast Sádi-Arab­ískan rík­is­borg­ara­rétt. Hún þekkir and­lit og getur haldið uppi sam­ræðum við fólk. Margir hafa þó bent á hræsn­ina en konur í land­inu búa enn við skert mann­rétt­indi.

Fyrsta vél­mennið í heim­inum hefur nú fengið rík­is­borg­ara­rétt í Sádi-Arabíu. Frá þessu er grein í frétt DR. Þetta gerð­ist í tengslum við ráð­stefnu í höf­uð­borg­inni Riyadh. Blaða­mað­ur­inn Andrew Ross Sorkin hjá CNBC til­kynnti vél­menn­inu um rík­is­borg­ara­rétt­inn.

Vél­mennið heitir Sophia og var hún ánægð og þakk­aði fyrir sig. „Ég er mjög stolt og það er mér heiður að taka við þess­ari ein­stöku við­ur­kenn­ingu. Það er sögu­legt að vera fyrsta vél­mennið í heim­inum til að rík­is­borg­ara­rétt,“ sagði Sophia í til­efni þess.

Sophia er þró­að­asta vél­mennið frá fyr­ir­tæk­inu Hanson Robotics. Hún getur líkt eftir ýmiss konar and­lits­dráttum og þekkt and­lit. Hún getur horfst í augu við fólk og haldið uppi sam­ræðum. Hún hefur farið í fjölda við­tala og meðal ann­ars komið fram í 60 mín­útum.

Ekki eru allir á eitt sáttir með ákvörðun stjórn­valda í Sádi-Arabíu. Margir hafa bent á að vél­mennið fái rétt­indi sem aðrir í land­inu hafa enn ekki fengið. Konur búa til að mynda við skert mann­rétt­indi og telja margir að betra hefði verið að huga að þeim og rétt­indum þeirra áður en vél­menni fengi rík­is­borg­ara­rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tæknimál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár