Apple kynnir þrjá nýja síma og endurhannað Apple Watch

Gunn­laugur Reynir Sverr­is­son umsjón­ar­maður Tækni­varps­ins fer yfir það helsta sem kom fram á kynn­ingu Apple í gær.

Verslun Apple í New York.
Verslun Apple í New York. Mynd: Apple

Í gær hélt Apple sinn árlega sept­em­ber við­burð. Eins og kom fram í úttekt okkar um það sem mátti vænta af við­burð­inum þá var orðrómur um ýmsar mögu­legar vörur og eft­ir­vænt­ingin því umtals­verð. Eins og í fyrra fór við­burð­inn fram í Steve Jobs Theater sem stendur við nýju höf­uð­stöðvar Apple.

Apple Watch 4

Nýja úrið er end­ur­hannað að miklu leiti þótt það haldi í meg­in­dráttum í sama útlit. Skjárinn stækkar um þriðj­ung og fyllir nú betur út í fram­hlið­ina. Sjálf úrin stækka örlítið. Minni útgáfan fer úr 38mm í 40mm og það stærra úr 42mm í 44mm. Apple nýtir þetta pláss fyrir nýjar og flókn­ari úrskífur með fleiri eig­in­leikum. Frá því að Apple kynnti fyrsta úrið fyrir 3 árum hefur þeirra sýn á vör­una þró­ast tals­vert. Í stað þess að vera fram­leng­ing á sím­anum og leið til að eiga í sam­skiptum við vini og ætt­ingja þá er öll áhersla Apple nú á heilsu og hreyf­ingu. Nýju úrin nema það ef not­and­inn dettur og geta hringt sjálf­krafa í neyð­ar­lín­una ásamt því að senda skila­boð á ICE (In Case of Emergency) tengiliði ef not­and­inn hefur verið hreyf­ing­ar­laus í mín­útu eftir fallið. Einnig getur úrið hjálpað til við að finna óreglu­lega hjart­slátt og aðrar hjart­slátt­ar­trufl­anir. Stærsta breyt­ingin í þessa átt er að nú er úrið með inn­byggðu hjarta­línu­riti (ECG) sem er algjör bylt­ing fyrir þá sem þurfa að fylgj­ast náið með sínum hjartslætti og hefur ekki sést áður í neinu öðru snjallúri.

iPhone XS og XS Max

Eins og búist var við kynnti Apple arf­taka iPhone X (les­ist tíu) sem kom í fyrra. Sá sími kall­ast iPhone XS sem mörgum finnst hljóma furðu nálæg enska orð­inu excess eða óhóf, varla sú hug­renn­inga­tengsl sem Apple vill hafa á sínum vörum. En auð­vitað munum við öll segja æphón tenn ess þannig að þetta verður varla vanda­mál. iPhone XS er hefð­bundin S upp­færsla. Útlit sím­ans nán­ast eins fyrir utan að hann kemur núna í gylltum lit til við­bótar við svartan og hvítan. Inn­volsið er hins vegar tals­vert breytt. Nýr A12 Fusion örgjörvi sem er tals­vert öfl­ugri, ný mynda­vél og upp­fært Face ID sem aflæsir sím­ann hraðar en áður. Í fyrsta sinn er sími frá Apple með stuðn­ingi við tvö SIM kort, annað hefð­bundið og hitt inn­byggt í sím­ann eða svo­kallað eSIM. Sú tækni er þó ekki kom­inn til Íslands og því óvíst hvenær við fáum þá virkni. Apple end­ur­tekur svo leik­inn frá 2014 þegar þeir kynntu iPhone 6 í tveimur stærðum. XS Max er algjör­lega eins og iPhone XS…bara stærri. Það útskýrir líka nafna­breyt­ing­una. Áður hétu stærri símar Apple Plus sem var þá tengt því að stærri sím­inn hefði eitt­hvað til við­bótar t.d. betri mynda­vél eða jafn­vel tvær í stað einnar. Ekkert slíkt er fyrir hendi með XS Max, hann er ein­fald­lega stærri útgáfa af iPhone XS. Skjárinn á XS er 6.5“ en ummál sím­ans er svipað og iPhone 8 Plus þökk sé nær ramma­lausri hönn­un­inni. Við­bót­ar­stærð­ina not­aði Apple þó til að setja aftur tengi fyrir heyrna­tól…djók, þau eru dauð. Sættið ykkur við það.

…aðeins eitt að lokum

En Apple kynnti ekki aðeins upp­færslur á flagg­skip­inu iPhone X heldur kynntu þeir iPhone XR sem er arf­taki iPhone 8. iPhone XR er nýi ódýri iPhone sím­inn. Síminn kostar það sama og iPhone 8 kost­aði í fyrra eða $749. Þó má geta að iPhone 8 var $50 dýr­ari en iPhone 7 sem var aftur $50 dýr­ari en iPhone 6S. iPhone 6S og allir hans for­verar höfðu kostað $649. Þessar hækk­anir eru að gera góða hluti fyrir afkomu Apple því sam­kvæmt síð­asta árs­upp­gjöri selur fyr­ir­tækið færri síma en áður en á tals­vert hærra verði fyrir hvert selt ein­tak sem skilar sér í meiri hagn­aði.

Skjá­stærð XR fellur mitt á milli XS og XS MAX eða 6.1“. Til að ná niður kostn­aði þá fórnar XR nokkru. Skjárinn er LCD í stað OLED á og upp­lausnin tals­vert lak­ari en á iPhone XS þó skerpan sé á pari við iPhone 8. Aðeins ein mynda­vél er á bak­hlið­inni og sím­inn úr áli í stað rið­frís stáls á XS. En það er einnig margt sem XR fær frá flagg­skip­inu. Hann hendir út fingrafara­les­ara fyrir FaceID , hefur ramma­lausa hönnun og stærri skjá en Bæði iPhone 8 og 8 Plus hafa. Eins og með XS og XS Max styður XR tvö SIM kort. Mynda­vélin er sú sama en þó er aðeins ein linsa á XR. Síminn kemur svo í 6 mis­mun­andi litum.

Þrátt fyrir orðróm um alls­konar önnur tæki þá var ekki meira kynnt í gær. Líklegt er að annar við­burður verði hald­inn í seinnipart októ­ber þar sem upp­færður iPad Pro og mögu­lega nýjar Macbook far­tölvur verða kynntar en það á eftir að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tæknimál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár