Hlutabréf í Icelandair rjúka upp – Ástæðan er óvissan um framtíð WOW air

Hluta­bréf í nær öllum félögum í íslensku kaup­höll­inni hafa fallið í verði það sem af er degi. Helsta und­an­tekn­ingin þar er Icelandair sem hefur rokið upp. Talið að ástæðan sé yfir­vof­andi tíð­indi af stöðu WOW air.

Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air.
Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air. Mynd: WOW air

Hluta­bréf í Icelandair hafa hækkað um 8,14 pró­sent það sem af er degi. Um tíma nam hækk­unin yfir tíu pró­sentu. Sú hækkun er, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans sem starfa á mark­aði, bein­tengd þeirri óvissu sem ríkir um hvort að WOW air nái að ljúka yfir­stand­andi skulda­bréfa­út­boði sínu með við­un­andi hætti. Á sama tíma hafa hluta­bréf í N1, sem ásamt Air BP seldur WOW air flug­véla­elds­neyti á Kefla­vík­ur­flug­velli lækkað um 5,28 pró­sent.

[links]Ferða­þjón­ustu­vef­ur­inn Túristi greindi frá því fyrr í dag, og hafði eftir heim­ild­ar­mönnum sínum, að þeir teldu ein­ungis tíma­spurs­mál að við­skipti með bréf í Icelandair yrðu stöðvuð þar til að örlög WOW air lægju fyrir.

Öll félög í kaup­höll­inni hafa lækkað það sem af er degi utan Icelandair og HB Granda, sem hefur hækkað um 0,63 pró­sent í mjög litlum við­skiptum. Sú staða er einnig rakin til óvissunnar um hvort WOW air nái að klára skulda­bréfa­út­boðið með far­sælum hætti. Alls stefndi WOW air á að ná í að minnsta kosti 50 millj­ónir dala en helst 100 millj­ónir dala, eða 5,7 til 11,5 millj­arða króna.

Skilmálar sífellt að breytast

Eigið fé Wow air var 1,5 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins, en á fyrri hluta árs­ins var við­skipta­vildin aukin um 19 millj­ónir Banda­ríkja­dala, frá því sem hún var í lok síð­asta árs, og styrkti þetta eig­in­fjár­stöðu félags­ins. Mikið tap hefur verið á rekstri félags­ins að und­an­förnu og nam það tæp­lega fimm millj­örðum króna frá júní í fyrra til júní á þessu ári. Áætl­anir gera ráð fyrir að rekst­ur­inn muni rétta úr kútnum seinni hluta þessa árs, en samt verði tapið 3,3 millj­arð­ar.

[adspot]Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um stöðu WOW air í röð frétta­skýr­inga frá miðjum ágúst, þegar greint var frá því að skulda­bréfa­út­boðið stæði fyrir dyrum. Útboðið, sem á að tryggja fjár­mögnun WOW air í 18 til 24 mán­uði, hófst form­lega í lok ágúst og upp­haf­lega var búist við að því myndi ljúka á nokkrum dögum, eða 31. ágúst. Það reynd­ist ekki raunin og því var brugðið á það ráð að breyta skil­yrðum þess til að reyna að fá fleiri fjár­festa til þátt­töku. Á meðal þess sem bætt var við var að þátt­tak­endur gátu fengið afslátt af hluta­fjár­út­boði WOW air í fram­tíð­inni, sem ráð­ast átti í í aðdrag­anda skrán­ingu á markað í Hamborg í Þýska­landi. Sá afsláttur átti að geta orðið allt að 25 pró­sent. Auk þess myndu skulda­bréfa­eig­end­urnir fá veð í öllu hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Þá var búist við því að vextir á skulda­bréf­unum yrðu níu pró­sent, sem er afar dýr fjár­mögnun og end­ur­speglar þá áhættu sem fjár­festar telja að felist í því að lána WOW air fjár­muni.

Til við­bótar voru settir inn skil­málar um að WOW air þyrfti að lúta fram­kvæmd sér­stakra álags­prófa sem áttu að tryggja að lausa- og eig­in­fjár­staða félags­ins færi ekki undir til­tekin mörk.

Skuldabréfaútgáfan í uppnámi

Ljóst er að skulda­bréfa­út­gáfan er í upp­námi. Stjórn­völd fund­uðu um stöðu WOW air um helg­ina í ljósi þess að greiðslu­stöðvun félags­ins myndi hafa mjög víð­tæk efna­hags­lega áhrif, að minnsta kosti til skamms tíma. Þau fund­ar­höld leiddu þó ekki til neinna aðgerða og mjög erfitt hefur verið að nálg­ast upp­lýs­ingar um stöð­una síð­ustu daga.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans líta að minnsta kosti hluti þeirra sem hafa áhuga á að leggja WOW air til fé þannig á málið að félag­inu vanti frekar nýtt hlutafé en nýjar skuldir. Þar er ekki um inn­lenda aðila að ræða, enda hafa íslenskir fjár­festar ekki sýnt því mik­inn áhuga að taka þátt í að fjár­magna WOW air.

Það myndi þýða að Skúli Mogensen, eini eig­andi félags­ins og for­stjóri þess, myndi þynn­ast niður í eign. Um það hefur ekki nást sátt enn sem komið er en málin voru meðal ann­ars rædd á stjórn­ar­fundi sem fór fram í gær­kvöldi. Nýjustu skila­boðin frá WOW air er að nið­ur­staða í mál­inu eigi að liggja fyrir í lok viku. Áður hafði Skúli sagt að nið­ur­stöðu væri að vænta strax eftir helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár