Forstjóri Ryanair boðar ringulreið í flugbransanum næstu árin

Michael O‘Leary segir flug­ferðir orðnar of ódýrar fyrir það sem þær eru og að dæmið gangi því ein­fald­lega ekki upp.

Meðalverð flugmiða með Ryanair stendur nú í 40 til 50 Evrum og segir O‘Leary að búast megi við því að það hækki í 60 Evrur.
Með­al­verð flug­miða með Ryanair stendur nú í 40 til 50 Evrum og segir O‘Leary að búast megi við því að það hækki í 60 Evrur. Mynd: EPA

Fréttir af verk­föllum, enda­lausum röðrum og löngum afgreiðslu­tímum, sein­k­unum og aflýs­ingum flug­ferða, haugum af mun­að­ar­lausum far­angri og jafn­vel lok­unum heilu flug­vall­anna hafa verið tíðar það sem af er sumri. Hluti orsak­ar­innar eru ferða­þyrstir Evr­ópu­búar, sem geta nú flogið án mik­illa tak­mark­ana eftir tveggja ára hlé vegna heims­far­ald­urs. For­stjóri Ryanair telur þó að þessi mikla ringul­reið sem skap­ast hefur í evr­ópska flug­brans­anum sé ekki tíma­bundin heldur eigi eftir að vara næstu árin.

Michael O‘Leary, for­stjóri Ryanair flug­fé­lags­ins, sem er leið­andi meðal lággjalda­flug­fé­laga, segir í sam­tali við The Guardian að flug­ferðir ein­fald­lega orðnar of ódýrar og það gangi ekki. Hann hugsi til þess í hvert sinn sem hann lendir á Stansted flug­vell­inum og greiðir meira fyrir lest­ar­mið­ann inn í London heldur en flug­mið­ann hversu fárán­legt það séþ

Vegna þessa boðar hann frek­ari verð­hækk­anir á flugi næstu árin, en verð á flugi hefur farið hækk­andi und­an­farin miss­eri, bæði í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins og svo enn meira vegna inn­rásar Rússa í Úkraínu og hækk­andi verðs á olíu vegna þess. Með­al­verð flug­miða með Ryanair stendur nú í 40 til 50 Evrum og segir O‘Leary að búast megi við því að það hækki í 60 Evrur.

Þó er Ryanair eitt fárra evr­ópskra flug­fé­laga sem hefur að mestu sloppið við vand­ræði vegna mann­eklu, en hún er einmitt það sem hefur verið að valda hvað mestum vand­ræðum í flug­sam­göngum það sem af er sumri. Íslenskir ferða­menn hafa ekki farið var­huga af ringul­reið­inni, en kvört­unum sem Neyt­enda­stofu hefur borist vegna seink­ana og nið­ur­fell­inga á flug­ferðum hefur stór­fjölgað, að því er Vísir fjall­aði um á dög­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár