WOW hagnaðist um 4,3 milljarða króna í fyrra

Tekjur WOW air voru 17 millj­arðar króna árið 2015. Í fyrra voru þær 36,7 millj­arðar króna.

Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air.
Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air. Mynd: Kjarninn.

WOW air hagn­að­ist um 4,3 millj­arða króna í fyrra. Tekjur félags­ins juk­ust um 111 pró­sent á milli ára, úr 17 millj­örðum króna í 36,7 millj­arða króna.

Farþegum sem flugu með WOW air fjölg­aði um 130 pró­sent milli ára og voru tæp­lega 1,7 millj­ónir í fyrra. Félagið gerir ráð fyrir að fljúga með um þrjár millj­ónir far­þega á árinu 2017. Heild­ar­sæta­nýt­ing var betri í fyrra en árið áður, fór úr 86 pró­sent í 88 pró­sent. WOW air flaug til yfir 30 áfanga­staða á árinu 2016. 

Í frétta­til­kynn­ingu frá WOW air kemur fram að félagið hafi á síð­asta ári bætt sjö þotum við flot­ann og var með tólf þotur í rekstri í lok árs­ins; tvær Airbus A320, þrjár Airbus A330 breið­þotur og sjö Airbus A321. Fjórar af þessum þotum eru í eigu félags­ins. Í ár mun WOW air bæta við sig fimm glæ­nýjum Airbus þotum og verður þá floti félags­ins orð­inn 17 þotur. Á síð­asta ári störf­uðu um 720 manns hjá WOW air sem er 157 pró­sent starfs­manna­aukn­ing frá árinu áður en árið 2015 störf­uðu 280 manns hjá félag­inu. Í ár, 2017 er gert ráð fyrir að starfs­manna­fjöldi félags­ins verði um 1100 manns.

Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, segir að árið 2016 hafi verið magnað í alla staði. „Við fórum af stað með háleit mark­mið um mikla stækkun á öllum sviðum og það er búið að vera óheyri­lega gaman að vinna með öllu okkar frá­bæra starfs­fólki við að ná til­settum mark­miðum og gott betur. Þetta er þeirra sigur. Að sama skapi er ljóst að sam­keppnin til og frá Íslandi sem og yfir hafið hefur aldrei verið meiri.Við höfum aldrei verið jafn vel í stakk búin að takast á við þessar áskor­anir og munum halda áfram að lækka far­gjöld öllum til hags­bóta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár