Wow air stærsta flugfélagið í janúar

WOW air var stærsta flug­fé­lag Íslands í jan­úar og flutti fleiri far­þega til og frá land­inu en Icelandair.

Skúli Mogensen forstjóri WOW air.
Skúli Mogensen for­stjóri WOW air. Mynd: WOW air

WOW air var stærsta flug­fé­lag Íslands í jan­úar og flutti fleiri far­þega til og frá land­inu en Icelandair.

Í til­kynn­ingu frá WOW air segir að félagið hafi flutt 217 þús­und far­þega til og frá land­inu í jan­úar og sæta­nýt­ing félags­ins hafi verið 88 pró­sent. Á sama tíma flutti Icelandair tæp­lega 210 þús­und far­þega til og frá land­inu og var sæta­nýt­ing þeirra 72,2 pró­sent.

Farþegum WOW í jan­úar fjölgai um 27 pró­sent frá sama mán­uði í fyrra og fram­boðnum sæt­iskíló­metrum fjölg­aði um 30 pró­sent á sama tíma.

Í til­kynn­ingu WOW air er haft eftir Skúla Mogensen for­sjtóra og stofn­anda WOW air að hann efist um að nokkur hafi átt von á því að WOW air yrði stærsta flug­fé­lagið á Íslandi á rétt rúmum fimm árum þegar þau hófu þetta ævin­týri. „Við höfum lagt okkur fram við að dreifa far­þega­fjöld­anum yfir allt árið og það er ánægju­legt að sjá okkur fylla vélar líka í jan­úar,“ segir Skúli.

Far­þega­fjöldi Icelandair í jan­úar jókst um 2 pró­sent frá jan­úar á síð­asta ári. Framboð var aukið um 6 pró­sent. Frakt­flutn­ingar félags­ins juk­ust hins vegar um 42 pró­sent á milli ára, sem í til­kynn­ingu félags­ins frá því í gær er sagt skýr­ast af auknum inn­flutn­ingi til lands­ins, auk þess sem verk­fall sjó­manna á síð­asta ári hafi áhrif á sam­an­burð­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár