Icelandair hagnast á lykilmánuðum en mikill samdráttur á hagnaði milli ára

Icelandair skil­aði hagn­aði á þriðja árs­fjórð­ungi en sá hagn­aður var mun minni en á síð­asta ári. Hagnaður félags­ins var 43 sinnum meiri á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2017 en á sama tíma­bili í ár. Verið er að semja við skulda­bréfa­eig­endur félags­ins.

Hagnaður Icelandair eftir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) var 115 millj­ónir dala, um 14 millj­arðar króna, á þriðja árs­fjórð­ungi, sem er vana­lega sterkasti árs­fjórð­ung­ur­inn í rekstri félags­ins, enda nær hann yfir júlí, ágúst og sept­em­ber sem eru með stærstu mán­uðum árs­ins í ferða­þjón­ustu. Það eru umtals­vert lægri rekstr­ar­hagn­aður en Icelandair var með á sama árs­fjórð­ungi í fyrra, þegar hann var 156 millj­ónir dala, eða tæp­lega 19 millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag. Um er að ræða sam­drátt upp á 26 pró­sent.

[links]Heild­ar­hagn­aður dróst líka mjög saman þegar árs­fjórð­ung­ur­inn er borin saman við sama tíma­bil 2017, eða um 36 pró­sent. Hagnaður fyrstu níu mán­aða árs­ins í fyrra var tæp­lega 98 pró­sent meiri en það sem hann var á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í árs­fjórð­ungs­upp­gjöri Icelandair sem birt var í morgun.

Skýr­ingin á þessu er vegna lægri far­þega­tekna – þær fóru úr 415,6 millj­ónum dala í 406,5 millj­ónum dala – og hækk­unar á olíu­verði, sem gerði það að verkum að kostn­aður Icelandair vegna kaupa á flug­véla­elds­neyti jókst um 19 pró­sent á milli ára.

[adspot]Í fjár­festa­kynn­ingu Icelandair kemur þó fram það hafi marg­borgað sig fyrir Icelandair að verja sig fyrir mögu­legum sveiflum á elds­neyt­is­verði, en heims­mark­aðs­verð á olíu hefur hækkað mikið und­an­farin miss­eri, með til­heyr­andi áhrifum á rekstur flug­fé­laga.

Starfs­manna­kostn­aður Icelandair hefur líka vaxið hratt milli ára. Þannig hafa laun og annar starfs­manna­kostn­aður vaxið um ell­efu pró­sent milli ára. Stærstur hluti þess kostn­aðar er hins vegar komin til vegna þess að starfs­fólki hefur verið fjölgað. Launa­hækk­anir voru til að mynda 3,6 pró­sent milli ára.

Erfitt ár eftir afleitar breytingar

Árið hefur verið erfitt hjá Icelandair. Félagið reyndi að bregð­ast við breyttum aðstæðum á mark­aði með breyt­ingum á leið­ar­kerfi sínu og algjöra stefnu­breyt­ingu á sölu- og mark­aðs­starfi félags­ins.

Inn­leið­ing þess­ara breyt­inga reynd­ist mikil mis­tök og fyrir birt­ingu upp­gjöra Icelandair vegna fyrstu tveggja fjórð­unga árs­ins voru sendar afkomu­við­var­anir vegna þess að nið­ur­staða þeirra var langt undir vænt­ingum. Þessi staða gerði það að verkum að Björgólfur Jóhanns­son, sem hafði verið for­stjóri Icelandair í tíu ár, sagði af sér í lok ágúst. Með því vildi hann axla ábyrgð á ofan­greindum breyt­ingum, sem teknar höfðu verið á hans vakt.

Vegna þessa hríð­féll mark­aðsvirði Icelandair. Það var um 189 millj­arðar króna fimmtu­dag­inn 28. apríl 2016, þegar það var sem mest. Í gær var það 32 millj­arðar króna.

Það sem er jákvætt er að Icelandair hefur byggt upp umtals­vert eigið fé á síð­ustu árum og er því ágæt­lega í stakk búið til að takast á við sveiflur. Eigið fé er nú um 70 millj­arðar króna, en hefur lækkað um 2,6 millj­arða króna það sem af er ári.

Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018 nemur hagn­aður Icelandair tæp­lega 1,8 millj­ónum dala, eða 218,5 millj­ónum króna. Á sama tíma­bili í fyrra var hagn­aður félags­ins 77,2 millj­ónir dala, eða 9,3 millj­arðar króna. Sam­drátt­ur­inn í arð­semi hefur því verið ansi brattur.

[adspot]Þrátt fyrir sterka eig­in­fjár­stöðu og eig­in­fjár­hlut­fall upp á 36 pró­sent glímir Icelandair við ákveð­inn skulda­vanda. EBITDA-afkoma Icelandair félags­ins er það lág að hún brýtur gegn lána­skil­málum á útgefnum skulda­bréfum félags­ins.

Icelandair flagg­aði þess­ari stöðu með til­kynn­ingu snemma í októ­ber þar sem greint var frá því að mögu­leg brot á þeim skil­málum væru lík­leg að raun­ger­ast og að við­ræður myndu eiga sér stað við skulda­bréfa­eig­endur vegna þessa.

Viðræður við skuldabréfaeigendur í gangi

Í til­kynn­ingu sem Icelandair sendi frá sér í morgun sagði að við­ræður við skulda­bréfa­eig­endur gangi vel. „Samkvæmt upp­gjöri þriðja árs­fjórð­ungs félags­ins sem birt var í dag hefur verið stað­fest að ofan­greind fjár­hags­leg skil­yrði eru ekki upp­fyllt. Félagið hefur átt í góðum við­ræðum við skulda­bréfa­eig­endur und­an­farið í tengslum við lang­tíma­lausn vegna máls­ins og hefur óskað eftir und­an­þágu frá ofan­greindum fjár­hags­legum skil­yrðum skulda­bréf­anna til 30. nóv­em­ber nk. í því skyni að meiri tími verði til stefnu til að finna lang­tíma­lausn vegna máls­ins. Hin tíma­bundna und­an­þága nýtur nú þegar stuðn­ings meiri­hluta eig­enda NO skulda­bréf­anna.

Félagið hefur einnig hafið við­ræður við eig­endur IS skulda­bréf­anna og gerir ráð fyrir að kom­ist verða að sams konar lang­tíma­lausn vegna þeirra bréfa. Tíma­bundin und­an­þága frá ofan­greindum fjár­hags­legum skil­yrðum bréf­anna til 30. nóv­em­ber nk. nýtur nú þegar stuðn­ings yfir 85% skulda­bréfa­eig­enda og mun félagið halda áfram við­ræðum um lang­tíma­lausn vegna máls­ins.“

Bréf í Icelandair hafa tekið kipp upp á við eftir að níu mán­aða upp­gjör félags­ins var birt í dag. Alls hafa bréfin hækkað um 7,2 pró­sent það sem af er degi.

Stærstu hlut­hafar félags­ins eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir, en stærsti hlut­haf­inn er Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna með 13,99 pró­sent hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár