Staðfest að í það minnsta ein hákarlategund er alæta

Ný rann­sókn sýnir að ekki allir hákarlar eru kjöt­ætur. Að minnsta kosti ein teg­und getur melt sjáv­ar­gras.

Vís­inda­menn, ásamt okkur hinum, hafa lengi talið að allir hákarlar væru kjöt­ætur. Nú hefur komið í ljós að í það minnsta ein teg­und hákarla er í raun alæta.

Tegundin sem um ræðir nefn­ist Shyrna tiburo og er skyld sleggju­háfum. Hákarlar af teg­und­inni eru nokkuð smá­vaxnir og vega full­vaxnir ein­stak­lingar tæp sex kíló­grömm. Heim­kynni þeirra eru í höfum í kringum Banda­ríkin þar sem þeir eru afar algengir.

Vís­inda­menn hafa vitað í rúman ára­tug að teg­undin étur sjáv­ar­gras og hefur það fund­ist í háu hlut­falli í maga þeirra. Þangað til nýlega var þó talið að hákarl­arnir ætu plönt­una hrein­lega óvart við fæðu­leit og að þeir gætu í raun ekki nýtt hana sem nær­ingu.

Samantha Leigh, vist- og þró­un­ar­fræð­ingur við Uni­versity of California, Irvine vildi kanna vort og þá hversu mikið sjáv­ar­gras hákarlar af teg­und­inni gætu melt.

Rann­sókn­ar­hópur með Leigh í far­ar­broddi safn­aði sjáv­ar­grasi og kom því fyrir í búri á rann­sókn­ar­stöð sinni. Út í vatnið var sett ákveðin kolefn­is­sam­sæta sem plönt­urnar taka upp og er auð­þekkj­an­lega við grein­ingu.

Næst próf­aði rann­sókn­ar­hóp­ur­inn að gefa fimm hákörlum fæðu sem sam­an­stóð af 90% sjáv­ar­grasi og 10% smokk­fiski.

Í mynd­bandu hér að neðan má sjá einn hákarl í rann­sókn­inni éta sea­grass og það greini­lega ekki óvart:

Eftir þrjár vikur á þessu fæði kom í ljós að allir hákarl­arnir höfðu þyngst sem benti til þess að þeir væru í raun að fá nær­ingu úr sjáv­ar­gras­inu. Til að kom­ast að því hvort og hversu mikið af plönt­unni dýrin náðu að melta voru fram­kvæmdar blóðprufur sem próf­uðu fyrir fyrr­nefndri kolefn­is­sam­sætu. Í ljós kom að há gildi af san­sæt­unni var að finna í blóði hákarl­anna og í lifr­ar­vef þeirra. Þetta stað­festi enn frekar að hákarl­arnir væru í raun að melta plönt­una.

Að auki komust vís­inda­menn­irnir að því að ákveðnar gerðir melt­inga­ens­íma sem brjóta niður trefjar og kol­vetni voru til staðar í miklum mæli í hákörlunum. Slík ensím eru yfir­leitt í litlum styrk í hreinum kjöt­ætum.

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var því nokkuð skýr: hákarlar af þess­ari teg­und geta melt sjáv­ar­gras og nýtt það sem nær­ingu, rann­sókn­ar­hópnum til mik­illar furðu.

Þessar nið­ur­stöður koll­varpa því sem áður var talið um fæðu­val hákarla. Þær eru einnig mik­il­vægar að því leyti að sjáv­ar­gras hefur átt undir högg að sækja í nokkurn tíma. Þessar upp­lýs­ingar geta því nýst í að finna betri leðir til að vernda gróð­ur­inn sem er mik­il­vægur hluti vist­kerfa víðs vegar í haf­inu.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar birt­ust í tíma­rit­inu Proceedings of the Royal Society B.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár