Hlutabréf í Skeljungi hækka

Hluta­bréf í Skelj­ungi hækk­uðu um rúm 9 pró­sent í rúm­lega 400 millj­óna króna við­skiptum í morgun.

Hluta­bréf í Skelj­ungi hækk­uðu um rúm 9 pró­sent í rúm­lega 400 millj­óna króna við­skiptum í morgun. Skelj­ungur sendi í gær frá sér afkomutil­kynn­ingu þar sem fram kemur að rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) félags­ins verður lík­leg­ast 300 millj­ónum krónum meiri á árinu 2018 en áður hafði verið áætlað. Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag.

Í afkomutil­kynn­ing­unni kemur fram að félagið hafi ákveðið miðað við þær for­sendur sem nú liggja fyrir að hækka EBITDA spá árs­ins 2018 úr 2.800 til 3.000 millj­ónir króna í 3.100 til 3.300 millj­ónir króna en að áætlun varð­andi fjár­fest­ingar hald­ist óbreytt, það er 750 til 850 millj­ónir króna.

„Við vinnslu á árs­hluta­upp­gjöri og upp­færðri áætl­ana­gerð fyrir árið 2018 kom í ljós að horfur eru á að afkoma árs­ins í heild verði betri en áætl­anir gerðu ráð fyrir. Helsta ástæða fyrir betri afkomu á fyrri helm­ingi árs­ins en gert hafði verið ráð fyrir helg­ast af betri afkomu af elds­neyt­is­sölu. Meiri sala var á flug­elds­neyti og á elds­neyti til erlendra skipa en gert hafði verið ráð fyrir. Þá hefur áætlun félags­ins fyrir seinni hluta árs­ins verið hækkuð í takt við betri horfur.“

Jafn­framt er fyr­ir­vari um að breyt­ingar á EBITDA spánni séu ekki byggðar á end­an­legu upp­gjöri, end­ur­skoð­uðum eða könn­uðum nið­ur­stöðum. Skelj­ungur vinni enn að árs­hluta­upp­gjöri og for­sendur og aðstæður geti tekið breyt­ingum og þar af leið­andi geti afkoma félags­ins af fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sem og vænt árs­af­koma félags­ins, orðið frá­brugðin núver­andi horfum.

Félagið mun birta upp­gjör fyrri árs­hluta 2018 eftir lokun mark­aða þriðju­dag­inn 28. ágúst næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár