Lífeyrissjóðirnir juku umsvif sín um þrjú prósent á innlendum hlutabréfamarkaði í júní, samkvæmt nýbirtum hagtölum Seðlabankans. Samhliða því bættu sjóðirnir við sig erlendum eignum, en erlent eignahlutfall þeirra hélst óbreytt frá því í maí.
Samkvæmt Seðlabankanum námu eignir lífeyrissjóða um 4.079 milljörðum króna í lok júní og hækkuðu um 22 milljarða frá maílokum. Innlendar eignir lífeyrissjóðanna voru þar nær þrír fjórðu hlutar heildareigna eða um 3.057 milljarðar króna. [adspot]
Af þeim þrjú þúsund milljörðum voru tæpar 275 þeirra bundnar í innlendri hlutabréfaeign, en það er níu milljörðum meira en mánuði áður. Aukningin nam rúmum þremur prósentum og hefur hún ekki verið jafnmikil frá því í október í fyrra.

[links]Kjarninn hefur áður fjallað um minnkandi áhrif lífeyrissjóðanna á innlendum hlutabréfamarkaði, en viðmælendur hans töldu júlímánuð í Kauphöllinni hafa einkennst af minnkandi kaupþrýstingi frá þeim auk margra annarra efnameiri fjárfesta.
Þegar litið er til síðustu ára má líka sjá að innlendar eignir lífeyrissjóða á hlutabréfamarkaði hafa minnkað töluvert. Samt sem áður virðist sem að hægst hafi á sölu innlendra hlutabréfa á síðustu mánuðum, þrátt fyrir yfirlýst markmið sjóðanna um að auka við erlendu eignarhlutdeild sína á næstu misserum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

















































Athugasemdir