Tilvistarkreppa markaðarins

Hvað ger­ist þegar líf­eyr­is­sjóðir fara að verða umsvifa­minni á íslenskum verð­bréfa­mark­aði?

Förum aftur um ára­tug. Sumarið 2008 var frost á eigna­mörk­uðum á Íslandi. Hluta­bréf höfðum á skömmum tíma fallið um meira en 30 pró­sent frá því í upp­hafi árs­ins og óveð­urs­ský voru í aug­sýn.

Þó eng­inn hafi séð fyrir hið epíska fall íslenska fjár­mála­kerf­is­ins (þó ýmsir telji sig hafa gert það) dag­ana 7. til 9. októ­ber þá voru sann­ar­lega komin fram ein­kenni á mörk­uðum sem vöktu ugg.

Endatafl þess­arar þró­unar þekkja allir. Neyð­ar­laga­setn­ing og fjár­magns­höft mörk­uðu sporin í nýju upp­hafi íslenska hag­kerf­is­ins og ekki síst hins skráða mark­aðar.

Þurrkaðist út

Óhætt er að segja að mikið end­ur­reisn­ar­starf hafi átt sér stað á mark­aði hér á landi frá því fyrir tæpum ára­tug. Nær allt mark­aðsvirði hluta­bréfa­mark­að­ar­ins gufaði upp og stærstu félögin á mark­aði - Kaupþing, Lands­bank­inn og Glitnir - féllu eins og spila­borg og til­heyrðu honum því ekki lengur.

Und­an­far­inn ára­tugur á hluta- og skulda­bréfa­mark­aði hefur markast af þessum atburðum, vita­skuld, enda hefur þurft mikið átak til að end­ur­reisa mark­að­inn og skapa á honum líf á nýjan leik. Í stórum dráttum hefur þessi end­ur­reisn gengið vel, en nú eru blikur á lofti.

Hafta-markaður

Á aðal­l­ista Nasdaq kaup­hallar Íslands eru nú 18 félög. Líf­eyr­is­sjóðir lands­manna eiga á bil­inu 50 til 60 pró­sent af heild­ar­hlutafé á mark­aðnum, þegar allt er talið, bæði bein og óbein eign­ar­að­ild, í gegnum sjóði.

Innan fjár­magns­hafta var mark­að­ur­inn end­ur­reistur og þá var ofgnótt fjár á mark­aðnum, þar sem líf­eyr­is­sjóðir höfðu tak­mark­aða mögu­leika til fjár­fest­inga. Í því umhverfi var mark­að­ur­inn reistur við og allt frá fyrstu nýskrán­ing­unni á markað eftir hrunið, þegar Hagar voru skráðir á markað í des­em­ber 2011, hefur félögum fjölgað jafnt og þétt. Þau eru nú 18 tals­ins.

Á árunum 2011 og fram til loka árs­ins 2017 átti sér stað mikil hækkun á flestum eignum á Íslandi, sam­hliða miklum vexti í ferða­þjón­ustu og inni­lok­uðu hag­kerf­inu í höftum. Fast­eignir þutu upp í verði, í alþjóð­legum sam­an­burði, og gengi krón­unnar styrkt­ist.

Líf­eyr­is­sjóðir byggðu í raun upp hluta­bréfa­mark­að­inn með nýfjár­fest­ingum í félögum sem voru skráð á markað. Hlutverk sjóð­anna skipti sköpum og gerði það mögu­legt að búa til lif­andi hluta­bréfa­markað á nýjan leik.

Lækkanir og lækkanir

Einhver óveð­urs­ský - ekki jafn dökk og árið 2008 þó - hafa verið að hrann­ast upp á mark­aðnum að und­an­förnu. Það sem af er árið hefur vísi­tala aðal­l­ist­ans lækkað um 17,3 pró­sent, og sé horft yfir 12 mán­aða tíma­bili þá nemur lækk­unin um 13 pró­sentum.

Hvað er það sem veldur?

Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör. Og eins og ávallt þegar mark­aðs­þróun er ann­ars vegar, þá er ekki auð­velt að skýra nákvæm­lega hvað það er sem veldur til­tek­inni þróun, að öðru leyti en því fyrir hversu mikið er keypt og selt, hvernig fram­boð og eft­ir­spurn hefur áhrif á dag­legar sveiflur verðs.

Eitt af því sem við­mæl­endur Kjarnans á meðal sér­fræð­inga á fjár­mála­mark­aði og fjár­festa voru sam­mála um að nú væri að ger­ast á mark­aði, væri minnk­andi kaup­þrýst­ingur á mark­aði frá líf­eyr­is­sjóðum og mörgum efna­meiri fjár­festum.

Líf­eyr­is­sjóðir hafa að und­an­förnu verið vax­andi á hús­næð­is­lána­mark­aði og hafa auk þess sett sér mark­mið um að auka hlut­fall erlendra eigna í eigna­söfnum sínum á næst­unni. Hlut­fallið fyrir sjóð­ina í heild er um 25 pró­sent, um þessar mundir. Heild­ar­eignir líf­eyr­is­sjóð­ana voru 4.068 millj­arðar króna í byrjun júlí og voru inn­lendar eignir þar af, rúm­lega 3 þús­und millj­arðar. Erlendar eignir voru rúm­lega 1 þús­und millj­arðar.

Flestir íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna hafa sett sér mark­mið um að auka hlut­deild erlendra eigna á næstu árum, í allt að 30 til 40 pró­sent. Þessi stefnu­breyt­ing hefur því mikil áhrif á Íslandi vegna umfangs líf­eyr­is­sjóð­ana á mörk­uðum hér á landi. Eft­ir­spurnin minnkar og mark­að­ur­inn verður grynnri.

Við­mæl­endur Kjarnans sögðu að þessi staða væri alls ekki ákjós­an­leg, þar sem erfitt sé að styðja við félög til vaxtar, þegar mark­að­ur­inn er svona grunnur eins og þessi miss­erin. Þá vanti einnig að örva erlenda fjár­fest­ingu inn á mark­að­inn, jafn­vel þó erlendir sjóðir hafi fjár­fest fyrir millj­arða í íslenskum félögum á síð­asta ári. Það dugar skammt. Nýskrán­ingar Arion banka og Heima­valla hjálpa þó til við að stækka „vöru­úr­valið“ á mark­aðnum.

Tækifæri og forspárgildi

Þrátt fyrir að hluta­bréfa­mark­að­ur­inn hafi verið að lækka að und­an­förnu, og ekki líf­legt á mark­aðnum þessi miss­erin, þá geta mynd­ast kauptæki­færi í stöðu sem þess­ari. Verð­mið­inn á Icelandair er t.d. búinn að lækka um meira en 75 pró­sent á tveimur árum og er hann nú langt undir því eigin fé sem er í félag­inu þessi miss­erin. Verð­mið­inn er nú um 38 millj­arðar á meðan eigið fé í lok fyrsta árs­fjórð­ungs á þessu ári var 57 millj­arðar.

En hvað er framundan? Erfitt er að segja til um það, eins og áður hefur verið nefnt, en í sam­an­burði við erlenda mark­aði þá hefur lækk­unin á Íslandi verið skarp­ari en víð­ast hvar, á þessu ári. Inn á mark­að­inn vantar sár­lega fleiri sem stunda reglu­lega við­skipti, og það á ekki síst við um almenna fjár­festa, bæði smærri félög og ein­stak­linga. Ef ekki kemur til vax­andi fjár­fest­ing á mark­aðnum á næstu miss­erum - einkum erlendis frá - þá gæti þessi skarpa lækk­un­ar­hrina haldið áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár