347 látnir vegna jarðskjálfta í Indónesíu

Yfirvöld í Indónesíu telja nú að nær 350 manns hafa lát­ist í jarð­skjálft­anum sem reið þar yfir síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Leitað að fórnarlömbum jarðskjálftans á Lombok-eyju.
Leitað að fórn­ar­lömbum jarð­skjálft­ans á Lombok-eyju. Mynd: EPA

Fjöldi skráðra dauðs­falla vegna jarð­skjálfta á Lombok-eyju í Indónesíu telur nú 347 manns, sam­kvæmt rík­is­miðl­inum þar í landi, Antara. CNN greindi fyrst frá. 

Jarð­skjálft­inn, sem reið yfir eyj­una síð­ast­lið­inn sunnu­dag, náði 6,9 stigum á Richter og var skæð­astur á norð­ur­hluta eyj­unnar. Með nýj­ustu tölum stór­eykst áætlað mann­tjón af skjálft­anum, en opin­berar tölur höfðu áður sagt frá 105 dauðs­föllum vegna hans.

Um 200 þús­undir manna lifa í norð­ur­hluta Lombok-eyjar, en talið er að um 165 þús­undir manna hafi þurft að yfir­gefa heim­ili sín vegna skjálft­ans. Þar af hafa alla­vega 347 manns lát­ist og 1.447 manns til við­bótar slasast. Samkvæmt frétt CNN hefur um 80% bygg­ing­anna á jarð­skjálfta­svæð­inu eyði­lagst.

Jarð­skjálfta­svæðið er rétt hjá Gili eyjum, sem er vin­sæll ferða­manna­staður í Indónesíu. Þar hafi tvö þús­und ferða­menn verið á meðan á skjálft­anum stóð. Allir ferða­menn­irnir hafa nú verið fluttir burt af eyj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðskjálfti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár