Hagnaður Arion helmingast

Hagnaður sam­stæðu Arion banka dróst saman um meira en helm­ing á síð­asta árs­fjórð­ungi miðað við sama tíma­bil í fyrra. Bankinn gaf einnig til kynna að hann muni reyna að selja kís­il­verið í Helguvik seinna í ár.

Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúni.
Höf­uð­stöðvar Arion banka í Borg­ar­túni. Mynd: Úr safni

Hagnaður sam­stæðu Arion banka á öðrum árs­fjórð­ungi nam 3,1 millarði króna, sam­an­borið við 7,1 millj­arð króna á sama tíma­bili 2017. Einnig vill bank­inn selja kís­il­verk­smiðj­una sína í Helguvík á þessu ári. Þetta kemur fram í nýbirtu árs­fjórð­ungs­upp­gjöri bank­ans í Kaup­höll­inni.

Samkvæmt upp­gjör­inu lækkar arð­semi eigin fjár niður úr 13% í 5,9% á tíma­bil­inu. Ef litið er á fyrri helm­ing árs­ins nam hagn­aður bank­ans um 5 millj­örðum króna. Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans var 21,9% í lok júní en var 24,0% í árs­lok 2017.

Þetta er fyrsta upp­gjör bank­ans frá skrán­ingu sinni í Kaup­höll­ina þann 15. júní, en hluta­bréf bank­ans hafa lækkað um tæp fimm pró­sent síðan þá.

Í upp­gjöri sínu minn­ist bank­inn einnig á því að koma Stakks­bergi, eign­ar­halds­fé­lagi kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík, í sölu­ferli á síð­ari hluta árs­ins. Kjarninn hefur áður fjallað um eign­ar­hald bank­ans á kís­il­ver­inu, en kís­ilfram­leið­andi vers­ins, United Silicon, fór í gjald­þrot fyrr á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár