Velta Kauphallarinnar gæti minnkað vegna minni umsvifa lífeyrissjóða

Líf­eyr­is­sjóðir ætla flestir að auka við erlendar fjár­fest­ingar sínar í ár. Við það gæti heild­ar­velta Kaup­hall­ar­innar minnkað, en hún hefur lækkað um þriðj­ung milli júní­mán­aða 2017 og 2018.

Kauphöll Íslands á Suðurlandsbraut.
Kauphöll Íslands á Suð­ur­lands­braut. Mynd: Nasdaq Iceland

Líf­eyr­is­sjóð­irnir stefna allir að auk­inni hlut­deild erlendra fjár­fest­inga í ár, en sam­hliða því má búast við nokk­urri minnkun á veltu á íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum. Heild­ar­velta Kaup­hall­ar­innar í júní er þriðj­ungi minni en hún var á sama tíma í fyrra.

Allt frá aflétt­ingu gjald­eyr­is­haft­anna hefur yfir­lýst stefna íslenskra líf­eyr­is­sjóða verið aðdreifa eigna­safn­inu sínu með því að auka við erlendar fjár­fest­ingar. Hvatt var til þeirrar stefnu í nið­ur­stöðum starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra í upp­hafi árs, en sam­kvæmt honum nemur eign­ar­hald líf­eyr­is­sjóð­anna þriðj­ungi af heild­ar­fjár­munum á Íslandi.

Í fjár­fest­ing­ar­stefnu 10 stærstu líf­eyr­is­sjóð­anna fyrir árið 2018 stefna þeir allir á að auka vægi erlendra eigna, auk þess sem þeir hafa hækkað efri vik­mörk fyrir hlut­deild þeirra. Samkvæmt fjár­fest­inga­stefnu Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna er stefnt að þriggja pró­sentu­stiga hækkun í hlut­deild erlendra eigna í ár, eða úr 25% í 28%. A-deild LSR stefnir á 30% hlut­deild erlendra eigna árið 2022 og 40% hlut­deild til lengri tíma, en hlut­deild sjóðs­ins við árs­lok 2017 var 22%. Stapi var hins vegar með 20,2% hlut­deild af erlendum hluta­bréfum í októ­ber í fyrra, en sjóð­ur­inn stefnir á 23% hlut­deild í lok árs.

Í maí síð­ast­liðnum námu heild­ar­eignir líf­eyr­is­sjóð­anna 4.057 millj­örðum, en þar af voru 3.041 þeirra inn­lendar. Hlutfall erlendra eigna líf­eyr­is­sjóð­anna nam því 25%, en það hefur auk­ist úr 21% við afnámi gjald­eyr­is­haft­anna í mars á síð­asta ári.

Ef miðað er við óbreytta stærð eigna­safns líf­eyr­is­sjóð­anna myndi hvert pró­sentu­stig í auk­inni hlut­deild þeirra í erlendum bréfum skila sér í 41 millj­arðs króna minni eign­ar­hlut­deild þeirra í Kaup­höll­inni. Pen­ing­inn sem upp á vantar til að hlut­fall erlendra fjár­fest­inga fari upp í lang­tíma­mark­mið margra þeirra, sem er 50%, nemur rúmum 1.000 millj­örðum króna.

Þriðjungi minni velta í Kauphöllinni

[links]Samhliða auk­inni hlut­deild líf­eyr­is­sjóða í erlendum eignum á seinni hluta árs­ins í fyrra minnk­aði mark­aðsvelta skráðra fyr­ir­tækja tölu­vert. Á tíma­bil­inu jókst hlut­fall erlendra eigna sjóð­anna úr 22% upp í 25%, en heild­ar­velta hluta­bréfa­við­skipta í Kaup­höll­inni minnk­aði úr tæpum 50 millj­örðum niður í 33 millj­arða. Í júní nam veltan einnig tæpum 33 millj­örðum, en það er rúmum þriðj­ungi minna en á sama tíma í fyrra.

Ekki hafa enn feng­ist tölur um erlendar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóð­anna, en hlut­deild þeirra hefur verið í kringum tæp 25% frá jan­úar til maí. Sömu­leiðis hafa geng­is­breyt­ingar krónu gagn­vart erlendum gjald­miðlum verið til­tölu­lega litlar, en krónan styrkt­ist um 1,7% á móti evru á sama tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár