Íranir svara Trump með hugsanlegum mótaðgerðum

Stjórn­völd í Teheran í Íran hafa sagst munu banna allan olíu­út­flutn­ing úr Persaflóa fari Banda­ríkin í harka­legar aðgerðir gegn land­inu.

Hassan Rouhani, forseti Írans.
Hassan Rouhani, for­seti Írans. Mynd: EPA

Írönsk stjórn­völd huga að því að svara við­skipta­þving­unum Banda­ríkj­anna auk hót­ana Trumps gegn for­seta lands­ins með banni á öllum olíu­út­flutn­ingum úr Persaflóa. Frá þessu er greint í frétt Reuters fyrr í dag.

Sam­skipti milli stjórn­valda í Íran og Banda­ríkj­unum hafa versnað á síð­ustu dögum, en Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hót­aði Írans­for­seta í hástöfum með Twitter-færslu sinni í gær. Kjarninn fjall­aði um færsl­una, en hún kom í kjöl­far ummæla Rouhani um að átök við Íran yrði „móðir allra stríða.“ Trump var­aði hins vegar við afleið­ing­unum af því að vera með hót­anir í garð Banda­ríkj­anna. Þeim myndi Íran gjalda með afleið­ingum sem fáir hafi þurft að ganga í gegnum áður. Tístið má sjá hér að neðan.

„Sterk, óhugsanleg og hörmuleg“ viðbrögð

„Ef Banda­ríkin vilja raun­veru­lega stíga í þessa átt er öruggt að þeir munu mæta við­brögðum og jöfnum mót­að­gerðum frá Íran,“ sagði tals­maður utan­rík­is­ráðu­neytis lands­ins, Bahram Qassemi. Hers­höfð­ingi varn­ar­liðs Írans, Mohammad Bagheri, tók í sama streng og var­aði við „sterkum, óhugs­an­legum og hörmu­legum“ við­brögðum frá stjörn­völdum Íslamska lýð­veld­is­ins í Íran fyrr í dag, sam­kvæmt írönsku frétta­veit­unni IRNA.

Í góðri stöðu

Enn fremur bætir Bagheri við að landið sé í góðri stöðu varð­andi örygg­is­gæslu olíu­flutn­inga um Persafló­ann og Hormuz-sundi og hafi getu til að bregð­ast við hvers konar við­skiptum í þessum heims­hluta. Sam­hljlómur virð­ist vera innan írönsku rík­is­stjórn­ar­innar um aðgerð­irnar, en síð­ast­lið­inn laug­ar­dag studdi þjóð­ar­leið­togi Írans, Aya­tollah Ali Khamenei til­lögu for­set­ans Hassan Rouhani um stöðvun olíu­út­flutn­ings úr Persafló­anum verði útflutn­ingur Írans stöðv­aður.

Forseti þjóð­þings Írana lýsti ummælum Trumps sem „orðum vand­ræða­gemsa“ í gær og sagði Banda­ríkja­menn upp­lifa mikla óreiðu í alþjóð­legum sam­skiptum sínum við önnur lönd þessa stund­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár