Hótanir á Twitter

Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna fór mik­inn á Twitter í nótt, eins og oft áður, og hót­aði Írönum öllu illu.

Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna fór mik­inn á Twitter í nótt, eins og oft áður, og hót­aði Írönum öllu illu.

Hassan Rouhani for­seti Írans sagði í ræðu í gær að hann var­aði leið­toga Banda­ríkj­anna við að ganga of langt - að átök við Íran yrði „móðir allra stríða“.

Trump svarar Rouhani í tísti sínu, sem er allt í hástöfum, og varar við afleið­ing­unum af því að vra með hót­anir í garð Banda­ríkj­anna. Þær verði með svip­uðum hætti og örfáir hafi þurft að líða í gegnum tíð­ina.

„Aldrei aft­ur hóta Banda­ríkj­un­um eða þið munið gjalda fyr­ir það með af­leið­ing­um sem fáir hafa þurft að ganga í gegn­um áður,“ skrif­ar Trump.

„Við erum ekki leng­ur ríki sem læt­ur yfir sig ganga með vit­stola orð­færi of­beld­is og dauða. Gætið var­úðar.“

Um­mæli Trump minna mjög á sam­skipti hans við leið­toga Norður-Kór­eu, Kim Jong-un, á sam­fé­lags­miðl­inum, en þá hót­aði hann Kim öllu illu áður en leið­tog­arn­ir tveir hitt­ust á leið­toga­fundi fyrr í sum­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár