Verkföll skerða flugumferð um alla Evrópu

Verkföll meðal starfs­manna flug­fé­laga og flug­um­ferð­ar­stjóra hafa raskað flug­um­ferð um alla Evrópu það sem af er ári. Hags­muna­sam­tök flug­fé­laga segja tjónið vera gríð­ar­legt, en meðal krafna verka­lýðs­fé­lag­anna eru launuð veik­inda­leyfi.

Flugmenn, flugfreyjur og flugþjónar Ryanair eru ekki sáttir með kjörin sín.
Flugmenn, flug­freyjur og flug­þjónar Ryanair eru ekki sáttir með kjörin sín.

Flugmenn og flug­um­ferð­ar­stjórar í Evrópu hafa reglu­lega lagt niður störf það sem af er ári, en talið er að áætl­anir millj­ónir ferða­manna hafi raskast vegna þeirra auk þess sem vænta má fleiri verk­falla. Samkvæmt hags­muna­sam­tökum flug­fé­laga er tjón vegna verk­fall­anna gríð­ar­legt og nemur millj­örðum evra, en verka­lýðs­fé­lögin segja launað veik­inda­leyfi og aflétt­ing á ströngum sölu­skil­yrðum vera meðal meg­in­mark­miða starfs­mann­anna.

Hrina verkfalla hjá Ryanair

Samkvæmt frétt Evening Standard aflýsti írska flug­fé­lagið Ryanair 24 flugum til og frá Írlands síð­asta föstu­dag vegna verk­falls flug­manna félags­ins. Verk­föllin munu svo halda áfram í dag, en flug­freyjur og flug­þjónar munu einnig leggja niður störf í Belgíu, Portúgal og á Spáni í dag og á morgun.

Flug­fé­lagið hefur orðið fyrir tíðum verk­föllum eftir að hafa ákveðið að sam­þykkja myndun verka­lýðs­fé­laga starfs­manna sinna í des­em­ber á síð­asta ári. Enn fremur hafa verk­föll flug­um­ferð­ar­stjóra leitt til aflýs­ingar á 2.500 flugum hjá félag­inu á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins. Á sama tíma lækk­aði hlut­fall stund­vísra fluga Ryanair svo úr 89% niður í 75%. Fram­kvæmda­stjóri félags­ins, Michael O‘Leary, hefur hótað að segja upp starfs­mönnum sínum ef verk­föllin halda áfram. Hann segir hætta á að vetr­ar­á­ætlun flug­fé­lags­ins rask­ist vegna verk­fall­anna, „sem gæti leitt til minnk­unar flot­ans á við­eig­andi flug­völlum auk upp­sagna,“ sam­kvæmt Financial Times.

O‘Leary er þó sér­stak­lega í nöp við flug­um­ferð­ar­stjóra, en hann sagði þá hafa valdið „áætl­unum flug­fé­lög­unum viða­miklum skaða“ og kall­aði þá „verstu lög­brjót­ana.“ O‘Leary hefur nú þegar sagst munu leggja fram form­lega kvörtun til Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins vegna Franskra flug­um­ferð­ar­stjórar sem voru í verk­falli níu helgar á fyrsta árs­fjórð­ungi.

13,4 milljarða evra tjón síðan 2010

Hags­muna­sam­tökin Airlines for Europe sendu svo frá sér frétta­til­kynn­ingu í dag, en sam­kvæmt henni hafa flug­um­ferð­ar­stjórar í Evrópu lagt niður störf í 29 daga á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, þar sem 22 þeirra voru í Frakk­landi. Samtökin telja aflýs­ing­arnar hafa haft áhrif á millj­ónir ferða­manna og lýsa þau yfir áhyggjum af því fjár­hagstjóni sem verk­föllin kunna að bera með sér nú á háanna­tíma ferða­þjón­ust­unnar. Samtökin vitna einnig í nýrri skýrslu sem PriceWaterhouseCooper vann fyrir þau, en þar er efna­hags­legt tjón flug­verk­falla á síð­ustu átta árum metið á 13,4 millj­arða evra.

Ólaunað veikindaleyfi og sölumarkmið á skafmiðum

Samkvæmt regn­hlíf­ar­sam­tökum verka­lýðs­fé­laga starfs­manna í sam­göngum, ITF, snú­ast verk­föll starfs­manna Ryanair meðal ann­ars um að geta fengið launað veik­inda­leyfi og þurfa ekki að fylgja hörðum sölu­mark­miðum. The Guardian greindi frá þessum sölu­mark­miðum í fyrra, en sam­kvæmt þeim varð starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins refsað ef þeir náðu ekki að selja ákveðið magn af ilm­vatni og skaf­miðum.

Samkvæmt frétt The Independent snýst kjara­bar­átta flug­manna Ryanair hins vegar um við­ur­kenn­ingu á starfs­reynslu, launað sum­ar­leyfi og flutn­ingur starfs­manna milli evr­ópskra og Norður-afrískra flug­stöðva.

ITF segir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa unnið við þessar aðstæður of lengi án þess að nein breyt­ing hafi orðið þar á, þrátt fyrir yfir­lýs­ingar fyr­ir­tæk­is­ins um að svo muni verða. Ryanair gerir hins vegar lítið úr kröfum ITF og kallar þær „til­gangs­lausar,“ auk þess sem félagið bendir á marg­vís­leg fríð­indi sem starfs­menn þess njóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár