Kauphöllin bað ekki um álit Persónuverndar

Ekki var leitað til Per­sónu­verndar þegar Kaup­höllin ákvað að hætta við birt­ingu hlut­haf­alista skráðra fyr­ir­tækja, þrátt fyrir stað­hæf­ingu Kaup­hall­ar­innar um að birt­ingin brjóti í bága við per­sónu­vernd­ar­lög.

Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir of auðvelt að komast að því hvaða einstaklingar séu á bak við lögaðila í hluthafalistum Kauphallarinnar.
Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hall­ar­innar, segir of auð­velt að kom­ast að því hvaða ein­stak­lingar séu á bak við lög­að­ila í hlut­haf­alistum Kaup­hall­ar­innar. Mynd: Nasdaq Iceland

Kauphöll Íslands ákvað að taka hlut­haf­alista skráðra fyr­ir­tækja úr birt­ingu án þess að hafa leitað álits Per­sónu­verndar, en telur þó nýjan lista brjóta í bága við ný per­sónu­vernd­ar­lög. Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðs­ins í morgun.

[links]Kjarninn fjall­aði um ákvörðun Kaup­hall­ar­innar í gær um að hætta við birt­ingu lista yfir 20 stærstu hlut­haf­ana í skráðum félögum þar sem hún telur birt­ing­una í núver­andi mynd ekki upp­fylla skil­yrði nýrra laga um per­sónu­vernd.

í Frétta­blað­inu kemur þó fram að ákvörð­unin hafi verið tekin án aðkomu Per­sónu­verndar á mál­inu þar sem henni hafi ekki borist erindi frá Kaup­höll­inni með beiðni um álit á mál­inu. Per­sónu­vernd bendir þó á að birt­ingin þurfi að falla undir gild­is­svið lag­anna og að í því felist að hún þurfi að lúta að hluta­bréfa­eign ein­stak­linga en ekki lög­að­ila.

Einnig er haft eftir Páli Harð­ar­syni, for­stjóra Kaup­hall­ar­innar, að oft sé ein­falt að kom­ast að því hverjir séu á bak við lög­að­il­ann. Þá sé trygg­ast að breyta lög­unum ef ætl­unin er að heim­ila algjöra birt­ingu á hlut­haf­alistum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár