Kauphöllin hættir að birta hluthafalista

Kauphöll Íslands mun hætta að birta lista yfir 20 stærstu hlut­hafa skráðra fyr­ir­tækja. Ástæðan er sögð vera inn­leið­ing nýrra per­sónu­vernd­ar­laga.

Höfuðstöðvar Kauphallar Íslands
Höf­uð­stöðvar Kaup­hallar Íslands Mynd: NasdaqIceland

Kaup­höllin hefur ákveðið að hætta að birta lista yfir tutt­ugu stærstu hlut­hafa í skráðum félögum vegna nýrra per­sónu­vernd­ar­laga. Frá þessu er greint í frétt Frétta­blaðs­ins í morgun.

Samkvæmt frétt­inni var skráðum hlut­hafa­fé­lögum greint frá ákvörðun Kaup­hall­ar­innar í tölvu­pósti, en þau fá öll helm­ing árgjalds­ins síns end­ur­greiddan vegna breyt­ing­anna. [adspot]

Kaup­höllin telur að útsend­ing og birt­ing hlut­haf­alist­ans í núver­andi mynd upp­fylli ekki skil­yrði nýrra laga um per­sónu­vernd. Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hall­ar­innar, segir þó í við­tali við Frétta­blaðið að áfram verði sendar til­kynn­ingar um við­skipti fjár­hags­lega tengdra aðila og ef eign­ar­hlutir í félögum fara yfir til­tekin mörk, en slíkar upp­lýs­ingar séu birtar í sam­ræmi við lög um verð­bréfa­við­skipti. Páll telur þá upp­lýs­inga­gjöf full­nægj­andi.

Á hinn bóg­inn segir Páll að félögin geti sjáf birt listana á heima­síðum sínum, en leita þurfi þó sam­þykkis hjá við­kom­andi hlut­höfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár