Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur lokað máli sem það hafði til skoðunar varðandi endurskipulagningu íslenskra lánastofnana. Eftirlitsstofnunin telur Ísland hafa gert viðeigandi lagabreytingar varðandi endurskipulagningu lánastofnana.
[links]Samkvæmt tilskipun ESB um endurskipulagningu eða slitameðferð lánastofnana innan Evrópska efnahagssvæðisins ræðst endurskipulagningin af þeirri málsmeðferð, lögum og reglum sem gilda í heimaríkinu, þar sem lánastofnunin er skráð.
ESA taldi í rökstuddu áliti sem það sendi Íslandi í febrúar, að Ísland hefði hvorki innleitt tilskipunina né undantekningarákvæði hennar á réttan hátt.
Nýverið lauk Ísland hins vegar innleiðingu á nýrri löggjöf þar sem tekið er á þeim vanköntum sem ESA benti ár. Er málinu því lokið.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir