Ekki rétt staðið að lögum um endurskipulagningu fjármálastofnana

Íslensk stjórn­völd hafa ekki inn­leitt til­skipun um end­ur­skipu­lagn­ingu og slita­með­ferð lána­stofn­ana með full­nægj­andi hætti. Þetta er nið­ur­staða rök­studds álits Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA.

EFTA-dómstóllinn.
EFTA-dóm­stóll­inn. Mynd: EPA

Íslensk stjórn­völd hafa ekki inn­leitt til­skipun um end­ur­skipu­lagn­ingu og slita­með­ferð lána­stofn­ana með full­nægj­andi hætti. Þetta er nið­ur­staða rök­studds álits sem Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) sendi frá sér í dag.

Í frétta­til­kynn­ingu frá ESA er haft eftir Högna Krist­jáns­syni stjórn­ar­for­manni ESA að eitt mark­miða samn­ings­ins um Evrópska efna­hags­svæðið sé að fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar njóti sömu rétt­inda og réttar­ör­yggis. Grund­völlur þess sé full­nægj­andi inn­leið­ing og fram­kvæmd EES lög­gjafar á öllu svæð­inu.

Til­skip­unin sem ekki var inn­leidd með full­nægj­andi hætti kveður á um að end­ur­skipu­lagn­ing eða slita­með­ferð lána­stofn­ana ráð­ist af þeirri máls­með­ferð, lögum og reglum sem gilda í heima­rík­inu - þar sem lána­stofn­unin er skráð. Til­greindar eru ákveðnar und­an­tekn­ingar frá þess­ari reglu og mat ESA er að þrjú und­an­tekn­ing­ar­á­kvæði hafi ekki verið rétt inn­leidd. Eitt þeirra til­tekur rétt kröfu­hafa til að halda því fram að end­ur­skipu­lagn­ingin eigi að fara fram sam­kvæmt lögum ann­ars EES ríkis en heima­rík­is­ins. Hin tvö varða greiðslu­jöfn­un­ar­samn­inga og rétt til skulda­jöfn­uðar.

Rök­studda álitið sem Íslandi var sent í dag er annað þrepið í samn­ings­brota­máli gegn íslenska rík­inu og verði ekki brugð­ist við innan tveggja mán­aða getur ESA vísað mál­inu til EFTA-dóm­stóls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EFTA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár