Frammistaða Íslands gagnvart EES fer versnandi á ný

Ísland stendur sig enn og aftur verst EES ríkj­anna við að inn­leiða til­skip­anir frá Evr­ópu­sam­band­inu. Inn­leið­ing­ar­hall­inn hefur auk­ist milli mæl­inga.

Lilja Alfreðsdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, í hópi leiðtoga EFTA-ríkjanna.
Lilja Alfreðs­dóttir, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, í hópi leið­toga EFTA-ríkj­anna. Mynd: EPA

Ísland stendur sig enn og aftur verst í því að inn­leiða EES til­skip­anir sem EFTA ríkin hafa skuld­bundið sig til að inn­leiða í lög innan tíma­marka. Þetta kemur fram í nýju frammi­stöðu­mati frá ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA.

Þetta er iðu­lega kallað inn­leið­ing­ar­halli á íslensku. Eftir að frammi­staða Íslands í því að inn­leiða reglur frá Evrópu hafði batnað fram stöðugt frá nóv­em­ber 2013 til nóv­em­ber 2015 hefur frammi­staðan nú versnað í tveimur frammi­stöðu­mötum í röð. Nú eru 18 til­skip­anir sem Ísland hefur ekki inn­leitt innan tíma­marka, sem gerir inn­leið­ing­ar­halla upp á 2,2%. Hin ríkin í EFTA, Liechtenstein og Noregur, standa sig mun betur. Inn­leið­ing­ar­halli Noregs er 0,4% og Liechtenstein er með 0,9% halla. Meðal inn­leið­ing­ar­halli í Evr­ópu­sam­bands­ríkjum er 0,7 pró­sent.

Upptaka EES gerða er grund­völlur fyrir aðgengi Íslands og hinna EES ríkj­anna að innri mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins. Það að Ísland standi sig svona illa í inn­leið­ingum þýðir að íslenskir rík­is­borg­arar, og rík­is­borg­arar innan alls EES svæð­is­ins, njóta ekki að fullu kosta innri mark­að­ar­ins.

Af þeim átján til­skip­unum sem Ísland á eftir að inn­leiða tengj­ast átta þeirra vöru­flutn­ingum. Þrjár hafa með umhverf­is­mál að gera, tvær fjár­mála­þjón­ustu og tvær sam­göngu­málum. Ein teng­ist orku­málum, ein vinnu­afli og ein heil­brigðis- og örygg­is­málum.

Í síð­asta frammi­stöðu­mati ESA, frá því um mitt síð­asta ár, var inn­leið­ing­ar­hall­inn 2%. Þá sagði ESA: „Þegar EES-­­ríki inn­­­leiðir ekki til­­­skipun innri mark­að­­ar­ins á réttum tíma fá ein­stak­l­ingar og fyr­ir­tæki ekki notið þeirra rétt­inda sem hún felur í sér. Íslensk fyr­ir­tæki kunna til dæmis að úti­­lok­­ast frá aðgangi að innri mark­að­inum ef sam­ræmdar tækn­i­­legar reglur eru ekki inn­­­leidd­­ar. Því lengur sem inn­­­leið­ing dregst, því alvar­­legri geta afleið­ing­­arnar orð­ið.“

ESA hefur ítrekað sagt að Ísland þurfi að standa sig miklu betur til að standa við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart inn­leið­ingu á lögum og reglum EES samn­ing­ins.

Síðasta rík­is­stjórn var með Evr­ópu­stefnu, þar sem meðal ann­ars var lýst yfir að ráð­ast ætti í mikið átak til að bæta inn­leið­ing­ar­hall­ann. Á fyrri hluta árs­ins 2015 átti hall­inn að vera kom­inn undir 1%. Það varð hins vegar aldrei, og lægst fór hall­inn í 1,8% áður en hann tók að aukast á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EFTA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár