Kæruréttur rýmkaður í umhverfismálum á Íslandi

Íslensk stjórn­völd hafa gert nauð­syn­legar laga­breyt­ingar til þess að að rýmka kæru­rétt almenn­ings í umhverf­is­málum. Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) telur úrbæt­urnar full­nægj­andi og að lögin sam­ræm­ist nú EES reglum.

Íslensk stjórn­völd hafa gert nauð­syn­legar laga­breyt­ingar til þess að að rýmka kæru­rétt almenn­ings í umhverf­is­málum. Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) telur úrbæt­urnar full­nægj­andi og að lögin sam­ræm­ist nú EES reglum. Málinu telst því lokið af hálfu ESA. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá ESA.

Árið 2015 hóf ESA samn­ings­brota­mál til umfjöll­unar vegna fjölda kvart­ana frá félaga­sam­tökum og almenn­ingi á Íslandi sem töldu að kæru­réttur í umhverf­is­málum væri ófull­nægj­andi.

ESA komst í kjöl­farið að þeirri nið­ur­stöðu að íslensk stjórn­völd hefðu ekki inn­leitt Evrópu til­skipun að fullu í tengslum við mat á áhrifum vissra verk­efna almenn­ings og einka­að­ila á umhverfið. Þegar ákvarð­anir eru teknar á grund­velli til­skip­un­ar­innar skal almenn­ingur, þ.m.t. umhverf­is­sam­tök, eiga kost á kæru­leið, hvort sem kæra lýtur að efn­is­legum atriðum eða broti á máls­með­ferð­ar­reglum. Rannsókn ESA leiddi í ljós að íslensk lög­gjöf tryggði ekki rétt til að bera mál undir úrskurð­ar­að­ila þegar deila sner­ist um athafna­leysi stjórn­valda.

Í júní 2018 leiddi Alþingi í lög rétt til sér­stakrar áfrýj­unar á málum og athafna­leysi (í umhverf­is­málum). ESA telur að við­eig­andi skref hafi verið tekin af íslenskum stjórn­völdum til þess að fylgja þess­ari til­skipun EES samn­ings­ins og hefur því lokað máli þessu gagn­vart Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EFTA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár