Telja Norðmenn brjóta á feðrum í fæðingarorlofi

ESA hefur höfðað mál gegn Noregi fyrir EFTA dóm­stólnum vegna meintra brota lands­ins á jafn­ræð­is­regl­unni þegar kemur að töku karla á fæð­ing­ar­or­lofi.

Erna Solberg er forsætisráðherra Noregs.
Erna Solberg er for­sæt­is­ráð­herra Noregs.

ESA ætlar að stefna Noregi fyrir EFTA dóm­stól­inn vegna brota á jafn­ræð­is­reglu þegar kemur að feðra­or­lofi. ESA, sem er eft­ir­lits­stofnun EFTA, telur norsku fæð­ing­ar­or­lofs­regl­urnar mis­muna eftir kyni og vill fá úr um það skorið hvort koma megi öðru­vísi fram við konur og karla þegar kemru að reglu­setn­ingu um fæð­ing­ar­or­lof.

Reglur um fæð­ing­ar­or­lof í Noregi er með þeim hætti að báðir for­eldrar eiga rétt á tíu vikna laun­uðu orlofi. Því til við­bótar gilda þar áþekkar reglur og á Íslandi, að for­eldr­arnir geti skipt á milli sín orlofi umfram þessar tíu vikur. Þar gilda hins vegar tak­mark­anir á orlofstöku feðra sem ekki gilda um mæður. Þannig markast réttur föð­urs af stöðu móður á vinnu­mark­aði, það er að segja fað­ir­inn á aðeins rétt á umfram orlof­inu ef móð­irin er í vinnu eða námi.

Í yfir­lýs­ingu frá ESA segir að jafn­ræði sé meg­in­þáttur í lög­gjöf evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins. „Þegar norsk yfir­völd kerf­is­bundið og með ólög­mætum hætti koma öðru­vísi fram við konur og karla er það hlut­verk ESA að draga þá til ábyrgðar,“ er haft eftir Bente Angell-Hansen for­seta ESA.

Angell-Hansen segir að evr­ópu­reglur skyldi Noreg ekki til að bjóða upp á fæð­ing­ar­or­lof. Ákveði ríki hins vegar að bjóða upp á slíkt verður það að vera gert á jafn­rétt­is­grund­velli.

Norsk yfir­völd hafa haft tölu­vert af tæki­færum til að tjá sig um málið og hafa lagt þá línu að þau telji ekki að Evrópu-regl­urnar eigi við í þessu til­felli. Sé hins vegar talið að regl­urnar gildi um norska fæð­ing­ar­or­lofs fyr­ir­komu­lagið telja stjórn­völd að um sé að ræða jákvæða mis­munun sem tryggi að konur taki þátt á vinnu­mark­aði.

Nú verður það hlut­verk EFTA dóm­stóls­ins að útkljá málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EFTA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár