Ekvador gerir fríverslunarsamning við EFTA

Ekvador skrif­aði í morgun undir frí­versl­un­ar­samn­ing við Frí­versl­un­ar­sam­tök Evrópu. Samn­ingnum er ætlað að létta hindr­unum og auð­velda við­skipti og fjár­fest­ingar á milli Ekvador og aðild­ar­ríkja EFTA.

Pablo Campana, ráðherra utanríkisviðskipta í Ekvador, skrifar undir samninginn.
Pablo Campana, ráð­herra utan­rík­is­við­skipta í Ekvador, skrifar undir samn­ing­inn. Mynd: Aðsend mynd

Ekvador skrif­aði í morgun undir frí­versl­un­ar­samn­ing við Frí­versl­un­ar­sam­tök Evrópu (EFTA). Samn­ingnum er ætlað að létta hindr­unum og auð­velda við­skipti og fjár­fest­ingar á milli Ekvador og aðild­ar­ríkja EFTA. Þau eru Ísland, Noregur, Sviss og Liechtenstein.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyti utan­rík­is­við­skipta Ekvador sem send var út í dag.

Skrifað var undir samn­ing­inn á Hólum í Hjalta­dal í morgun. Ráð­herra­fundur EFTA hófst á Sauð­ár­króki í gær og mun honum ljúka á morgun. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, skrif­aði undir samn­ing­inn fyrir hönd Íslands.

Pablo Campana, ráð­herra utan­rík­is­við­skipta í Ekvador, skrif­aði undir samn­ing­inn í morgun. Hann segir samn­ing­inn mik­il­vægan fyrir alla aðila og að hann opni nýtt mark­aðs­svæði fyrir nær allar útflutn­ings­vörur Ekvador, mark­aðs­svæði sem telur um 14 millj­ónir íbúa. „Það eru góðar fréttir fyrir útflytj­endur, fram­leið­endur og fjár­festa, bæði í Ekvador og innan EFTA-ríkj­anna. Við­skipti milli þess­ara aðila eru nú þegar mikil og við gerum ráð fyrir að þau verði enn meiri eftir und­ir­ritun samn­ings­ins. Ekvador er land tæki­fær­anna og með samn­ingnum stígur Ekvador stórt skref nær helstu vel­meg­un­ar­ríkjum Evrópu. Þessu til við­bótar hafa verið sett ný lög um erlendar fjár­fest­ingar í Ekvador sem munu veita rétt­ar­vissu, fyr­ir­sjá­an­leika og skattaí­viln­anir vegna erlendra fjár­fest­inga,“ segir hann. 

Í til­kynn­ing­unni segir að helstu útflutn­ings­vörur Ekvador séu ávextir og græn­meti, þá helst ban­anar, en auk þess gull, kakó­vörur, rósir, fiski­ol­íur, rækjur og önnur sjáv­ar­föng. Útflutn­ings­verð­mæti til ríkja EFTA hafi numið á síð­asta ári um 110 millj­ónum Banda­ríkja­dala. Inn­flutn­ingur Ekvador frá EFTA-ríkj­unum hafi á sama tíma numið um 120 millj­ónum dala en meðal helstu inn­flutn­ings­var­anna séu lyf, áburður, úr, lækn­inga­tæki og ýmiss konar efni.

Í samn­ingnum milli Ekvador og EFTA eru kveðið á um mark­aðs­að­gengi fyrir vörur og þjón­ustu, upp­runa­merk­ingar, holl­ustu­hætti og afnám tækni­legra hind­r­ana í milli­ríkja­við­skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EFTA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár