Stjórnvöld á lokametrum að ganga frá ólögmætri ríkisaðstoð

Íslensk stjórn­völd eru á loka­metr­unum að ganga frá samn­ingum um end­ur­heimt á ólög­legum rík­is­styrkjum. Þau hafa þó enn ekki upp­lýst eft­ir­lits­stofnun EFTA um stöðu mála.

Íslensk stjórn­völd segja enn að verið sé að leggja loka­hönd á frá­gang á end­ur­heimtum á ólög­mætri rík­is­að­stoð, sem ríkið var dæmt fyrir að hafa ekki end­ur­heimt fyrir EFTA dóm­stólnum í sumar.

ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, stefndi Íslandi fyrir dóm­stólnum vegna þess að ekki hafði verið brugð­ist við ákvörðun eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar, sem úrskurð­aði fyrir meira en tveimur árum síðan að íslenska ríkið hefði gert fimm ólög­lega fjár­fest­inga­samn­inga sem bæri að ógilda og end­ur­heimta þá aðstoð sem veitt hafði verið.

Kjarninn greindi frá því fyrir hálfum mán­uði að ESA hefði ekki fengið neinar upp­lýs­ingar frá íslenskum stjórn­völdum um það hvort þau væru farin að end­ur­heimta þessa ólög­legu rík­is­að­stoð. Kjarninn sendi einnig fyr­ir­spurn á atvinnu­vega­ráðu­neytið til að spyrj­ast fyrir um stöðu mála. Í svar­inu frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu, sem barst fyrir helgi, kemur fram að verið sé að leggja loka­hönd á frá­gang eins máls­ins, en búið sé að ganga frá öllum öðrum samn­ingum.

Fjár­fest­inga­samn­ing­unum var í þremur til­vikum rift, þar af tveimuar þar sem verk­efnin fóru aldrei af stað og því voru engir rík­is­styrkir veittir á end­anum. Þetta voru samn­ingar vegna kís­il­vers Thorsils í Þor­láks­höfn, sem fór aldrei af stað, og kís­il­vers Íslenska kís­il­fé­lags­ins í Helguvík, sem fór heldur aldrei af stað. Fjár­fest­inga­samn­ingi við Verne Global vegna gagna­vers fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið rift og búið er að krefja fyr­ir­tækið um end­ur­greiðslu á rík­is­að­stoð í sam­ræmi við ákvörðun ESA. Samn­ingum við Becromal vegna álþynnu­verk­smiðju hefur verið breytt, allar íviln­anir hafa verið felldar út og búið er að krefja fyr­ir­tækið um end­ur­greiðslu. Eina málið sem stendur út af er vegna stá­lend­ur­vinnslu GMR, þar sem búið er að krefj­ast end­ur­greiðslu en verið er að leggja loka­hönd á frá­gang máls­ins, sam­kvæmt atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Ráðu­neytið segir ekki hvort fyr­ir­tækin séu búin að borga eitt­hvað til baka.

Þetta er nán­ast alveg sama staða og var uppi í sumar þegar dómur EFTA dóm­stóls­ins féll. Þá sagði atvinnu­vega­ráðu­neytið að búið væri að ná sam­komu­lagi í öllum málum nema GMR end­ur­vinnslu, og það mál væri á loka­stigum.

Kjarninn spurði ESA á nýjan leik í dag hvort búið væri að upp­lýsa stofn­un­ina um þetta, en í svari stofn­un­ar­innar kemur fram að hún hafi enn ekk­ert heyrt frá íslenskum stjórn­völdum um stöðu mála.

Viðvarandi vandamál

Íslensk stjórn­völd vissu allan tím­ann að þau hefðu gerst brot­leg með íviln­un­ar­samn­ing­unum en sinntu því ekki að end­ur­heimta aðstoð­ina, að því er fram kom í dómi EFTA dóm­stóls­ins. Stjórn­­völd hafi ekki lagt fram neinar sann­­anir fyrir því fyrir dómi að samn­ing­­arnir hafi verið ógildir eða að greiðslum til fyr­ir­tækj­anna hafi verið hætt. Þá hafi Ísland ekki sýnt fram á nákvæmar upp­­hæðir sem ætti að end­­ur­heimta né heldur hvernig stæði til að standa að end­­ur­heimt­un­­um.

Í við­tali við Kjarn­ann í ágúst sagði Gjer­mund Mathies­en, yfir­maður sam­keppn­is­mála hjá ESA að endur­heimtur á ólög­mætri rík­is­að­stoð væru orðnar að við­var­andi vanda­máli á Íslandi og stofn­unin hefði áhyggjur af stöðu mála hér­lend­is.

Íslensk stjórn­­völd héldu því fram fyrir dómi að upp­­hæð­­irnar sem um ræðir séu mjög litl­­ar. Mathiesen segir að upp­­hæð­­irnar hafi vissu­­lega ekki verið mjög háar, en það veki einmitt upp áhyggjur af því hvað myndi ger­­ast í stærri mál­­um. „Myndi þá taka ennþá lengri tíma að end­­ur­heimta rík­­is­að­­stoð­ina? Það er það sem við höfum miklar áhyggjur af.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EFTA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár