Bregðast við áliti ESA

Fjár­mála­ráðu­neytið hyggst leggja fram laga­frum­varp um breyt­ingar á lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki til að bregð­ast við athuga­semdum sem fram komu í rök­studdu áliti ESA.

EFTA dómstóllinn.
EFTA dóm­stóll­inn. Mynd: EPA

Fjár­mála­ráðu­neytið hyggst leggja fram laga­frum­varp um breyt­ingar á lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki til að bregð­ast við athuga­semdum sem fram komu í rök­studdu áliti ESA (Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA) um að íslensk stjórn­völd hafi ekki inn­leitt þrjú ákvæði til­skip­unar um end­ur­skipu­lagn­ingu og slita­með­ferð lána­stofn­ana með full­nægj­andi hætti í íslenskum rétti.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu þar sem segir að gert sé ráð fyrir frum­varp­inu á yfir­stand­andi þingi og sé frum­varpið á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar.

Um er að ræða þrjár und­an­tekn­ingar frá einni aðal meg­in­reglu til­skip­un­ar­innar um að lög heima­ríkis lána­stofn­unar gildi um end­ur­skipu­lagn­ingu eða slita­með­ferð hennar. Þessar þrjár und­an­tekn­ingar sem um ræðir eru réttur til skulda­jafn­aðar, greiðslu­jöfn­un­ar­samn­ingar og lög­gern­ingar sem eru lána­drottnum skað­legir. Ákvæðin hafa verið inn­leidd í lög um fjár­mála­fyr­ir­tæki en álit ESA er að ekki hafi verið staðið að inn­leið­ing­unni með full­nægj­andi hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjármálaráðuneyti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár