Afkoma ríkissjóðs jákvæð um 42 milljarða í fyrra

Tekjur rík­is­sjóðs námu sam­tals 830 millj­örðum króna í fyrra en rekstr­ar­gjöld voru 809 millj­arðar. Fjár­magns­gjöld voru nei­kvæð um 57 millj­arða en hlut­deild í afkomu félaga í eigu rík­is­ins jákvæð um 78 millj­arða.

Rekstr­ar­af­koma rík­is­sjóðs á síð­asta ári var jákvæð um 42 millj­arða króna í fyrra, sam­an­borið við 84 millj­arða afgang árið áður. Þetta kemur fram í nýbirtum rík­is­reikn­ingi fyrir árið 2019. Í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu segir að tekjur hafi sam­tals numið 838 millj­örðum króna en gjöld 818 millj­örðum. Hrein fjár­magns­gjöld voru nei­kvæð um 57 millj­arða króna en hlut­deild í afkomu félaga í eigu rík­is­ins jákvæð um 78 millj­arða króna.

Í til­kynn­ingu segir að afkoma árs­ins sam­kvæmt hag­skýrslu­staðli sé lak­ari en áætlun gerði ráð fyrir: „Þegar afkoma rík­is­sjóðs sam­kvæmt rík­is­reikn­ingi er borin saman við afkomu­mark­mið fjár­mála­á­ætl­unar og fjár­laga er það gert á grunni hag­skýrslu­stað­als (GFS). Á þeim grunni er heild­ar­af­koma rík­is­sjóðs árið 2019 nei­kvæð um 39 ma.kr. sem er um 24 ma.kr. lak­ari afkoma en end­ur­skoðuð áætlun árs­ins gerði ráð fyrir. Fjárlög árs­ins 2019 gerðu ráð fyrir að heild­ar­af­koma yrði jákvæð um 29 ma.kr.“

Í inn­gangs­orðum að rík­is­reikn­ingi ritar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að blikur hafi verið á lofti í efna­hags­um­hverf­inu strax á fyrstu mán­uðum árs­ins 2019. Umsvif ferða­þjón­ust­unnar hafi minnkað og það hafi haft bæði bein og óbein áhrif á rík­is­reikn­ing­inn.

„Nú er orðið ljóst að sá mót­byr sem ferða­þjón­ustan mætti snemma árs 2019 var aðeins for­leikur að þeim ófyr­ir­séðu efna­hags­hremm­ingum á flestum sviðum atvinnu­lífs­ins sem fylgdu heims­far­aldri kór­ónu­veirunnar á vor­dögum þessa árs. Má telja að þróun mála árið 2019 hefði getað orðið upp­hafið að skamm­vinnri efna­hagslægð en að hún hafi nú stökk­breyst í einn dýpsta og víð­tæk­asta efna­hags­skell í manna minnum. Engu að síður telja flestir spá­að­ilar að kreppan verði skamm­vinn og að efna­hags­bat­inn hefj­ist þegar á árinu 2021,“ segir Bjarni enn fremur í inn­gangs­orðum rík­is­reikn­ings.

Þá segir hann helstu áskorun stjórn­valda vera að skapa góð skil­yrði fyrir efna­hags­bata. „Svigrúm rík­is­sjóðs til að auka við skuldir sínar gerir stjórn­völdum betur kleift að verja grunn­stoðir sam­fé­lags­ins og tryggja öfl­uga við­spyrnu fyrir íslenskt efna­hags­líf án þess að fórna sjálf­bærni opin­berra fjár­mála,“ segir Bjarni í lok inn­gangs­orða að rík­is­reikn­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjármálaráðuneyti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár