Gagnrýna gjafabréf Icelandair og WOW

Neyt­enda­sam­tökin gagn­rýna alltof stuttan gild­is­tíma gjafa­bréfa sem keypt eru hjá íslensku flug­fé­lög­unum Icelandair og WOW air. Samtökin telja eðli­legt að gild­is­tími slíkra bréfa sé fjögur ár, sem er almennur fyrn­ing­ar­frestur á kröfum.

Neyt­enda­sam­tökin gagn­rýna gild­is­tíma gjafa­bréfa sem keypt eru hjá íslensku flug­fé­lög­unum Icelandair og WOW air. Samtökin telja eðli­legt að gild­is­tími slíkra bréfa sé fjögur ár, sem er almennur fyrn­ing­ar­frestur á kröfum.

Langmest sé kvartað til sam­tak­anna yfir gjafa­bréfum flug­fé­lag­anna og algengt sé að gild­is­tími þeirra renni út áður en eig­and­inn nái að nýta sér inn­eign­ina. Gild­is­tími gjafa­bréfa hjá Icelandair sé tvö ár en hjá WOW air aðeins eitt ár. „Ekki nóg með það heldur þarf eig­andi bréfs­ins að vera búinn að fara í ferð­ina innan árs­ins. Samkvæmt þeim kvört­unum sem sam­tök­unum ber­ast vegna gjafa­bréfa WOW air hefur hins vegar verið lít­ill vilji til að fram­lengja gild­is­tím­ann. Neyt­enda­sam­tökin hvetja WOW air til að leysa úr þeim gjafa­bréfa­málum sem út af standa enda skil­málar gjafa­bréf­anna bein­línis ósann­gjarnir,“ segir í til­kynn­ingu frá Neyt­enda­sam­tök­unum.

Neyt­enda­sam­tökin segja fyr­ir­tæki sem selji gjafa­bréf hafa fengið fjár­magn inn í rekst­ur­inn og telja að í raun mætti í þessu sam­bandi tala um vaxta­laust lán. „Það er því í hæsta máta óeðli­legt að inn­eignin fyrn­ist án þess að neyt­and­inn hafi nokkuð um það að segja.“

Eftir að Neyt­enda­sam­tökin höfðu sent WOW air erindi og farið fram á að gild­is­tím­inn yrði lengdur hætti félagið sölu á gjafa­bréfum. Hins vegar ber­ast sam­tök­unum þó enn kvart­anir enda eflaust tölu­vert magn af gjafa­bréfum enn í umferð. Kvart­anir ber­ist einnig vegna gjafa­bréfa Icelandair, en þær séu færri enda gild­is­tím­inn aðeins lengri. „Icelandair er að sjálf­sögðu einnig hvatt til að leysa úr málum sinna við­skipta­vina og að lengja gild­is­tíma gjafa­bréfa í fjögur ár.“

Neyt­enda­sam­tökin segj­ast ekki geta ráð­lagt fólki að kaupa gjafa­bréf flug­fé­lag­anna í ljósi fjölda kvart­ana þótt hug­ur­inn sé góður.

„Þá telja sam­tökin að fyr­ir­tæki sem ekki treysta sér til að hafa sann­gjarnan gild­is­tíma á gjafa­bréfum ættu að sleppa því að selja slík bréf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár