Stoðir stærsti íslenski einkafjárfestirinn í Arion

Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið sem áður var þekkt sem FL Group á hlut að and­virði tæp­lega millj­arðs íslenskra króna í Arion banka.

Með 0,6 prósenta eignahlut er sjóðurinn orðinn stærsti íslenski einkafjárfestirinn í Arion.
Með 0,6 pró­senta eigna­hlut er sjóð­ur­inn orð­inn stærsti íslenski einka­fjár­festir­inn í Arion. Mynd: Anton Brink

Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Stoðir (áður FL Group) er stærsti íslenski einka­fjár­festir­inn í hlut­hafa­hópi Arion banka, en félagið á 0,6 pró­senta hlut í bank­anum sem met­inn er á tæp­lega millj­arð íslenskra króna. Þetta kemur fram í frétt Mark­aðs­ins á Frétta­blað­inu í dag.

Samkvæmt frétt­inni skráðu Stoðir sig fyrir í kringum 100 millj­ónum hluta í útboð­inu, eða sem jafn­gildir 7,5 millj­örðum miðað við útboðs­gengi, en fékk ein­ungis 12% af því, eða tæp­lega millj­arð, úthlutað í bank­anum. Meðal ann­arra einka­fjár­festa í bank­anum er Vogun hf., en Kristján Loftsson og fjöl­skylda er stærsti hlut­hafi þess félags í gegnum Fisk­veiði­hluta­fé­lagið Venus. Arion banki er sjálfur á meðal stærstu hlut­hafa Stoða með um 16 pró­senta hlut. [adspot]

Hverjir eiga Stoði?

Stoðir, sem áður hét FL Group, fór með him­in­skautum fyrir banka­hrun sem eitt umsvifa­mesta fjár­fest­inga­fé­lag banka­bólunnar. Þegar Glitnir, stærsta eign FL Group, féll var ljóst að félagið myndi ekki lifa af. Það fór í greiðslu­stöðvun og síðar í gegnum nauða­samn­inga þar sem kröfu­hafar eign­uð­ust félagið. Stærstur þeirra var Glitnir, bank­inn sem félagið hafði átt stóran hlut í.

[links]Síðustu ár hafa Stoðir hægt og rólega selt eignir sínar og greitt afrakst­ur­inn til kröfu­hafa. Í fyrra­vor seldi svo GlitnirHoldco 40 pró­sent í félag­inu á meðan tvö félög, S121 ehf. og S122 ehf., keyptu rúman 50 pró­senta hlut. Félögin tvö eru í eigu stórra hlut­hafa í Trygg­ing­ar­mið­stöð­unni sem voru margir hverjir lyk­il­menn í FL Group á árunum fyrir hrun.

5 milljarða hagnaður

Síð­ast­lið­inn mars seldu Stoðir, í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Ferskur Holding 1, tæpan 9% eign­ar­hlut sinn í hol­lenska drykkj­ar­vöru­fram­leið­and­anum Refresco, en yfir­tökutil­boðið var sam­þykkt af Refresco í októ­ber í fyrra. Sölu­virðið nam 144 millj­ónum evra, sem jafn­gildir um 18 millj­örðum íslenskra króna. Hlutur Stoða var met­inn á um 12,7 millj­arða króna um ára­mótin 2016/2017, sem þýðir að félagið hagn­að­ist um rúma fimm millj­arða á síð­asta ári. Með hagn­aði síð­asta árs hækk­aði eigið fé félags­ins einnig um fimm millj­arða, en það stendur nú í 18,3 millj­örðum íslenskra króna sam­kvæmt síð­asta árs­reikn­ingi.

Formaður stjórnar Stoða er Jón Sig­urðs­son, en með honum í stjórn sitja þeir Sigurjón Pálsson og Örvar Kærne­sted. Fram­kvæmda­stjóri félags­ins er Júlíus Þor­finns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár