Refresco selt fyrir 201 milljarða – Íslenskir fjárfestar hagnast gífurlega

Stjórn Refresco hefur sam­þykkt 201 millj­arða króna yfir­tökutil­boð í félagið. Íslenskir aðilar eru stærstu ein­stöku eig­endur Refresco, en virði hlutar þeirra hefur hækkað um marga millj­arða á nokkrum mán­uðum.

Fjár­fest­inga­fé­lagið PAI Partners og British Columbia Invest­ment Mana­gement Corporation hafa sam­þykkt að kaupa hol­lenska drykkja­vöru­fram­leið­and­ann Refresco fyrir 1.623 millj­ónir evra, eða 201 millj­arð króna miðað við núver­andi gengi Seðla­banka Íslands. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu kaup­enda og Refresco sem send var út í morgun.

Salan skiptir miklu máli fyrir nokkra íslenska aðila, sem munu hagn­ast gíf­ur­lega vel á henni. Stærsti eig­andi Refresco er félagið Ferskur Holding 1, sem er m.a. í eigu Stoða (áður FL Group) og Arion banka, með 14,53 pró­sent eign­ar­hlut. Sam­an­lagt er virði hlutar Fersks 29,2 millj­arðar króna.

Stoðir á beint 8,87 pró­sent í Refresco í gegnum Ferskan Holding. Sá hlutur er því met­inn á 17,8 millj­arða króna sam­kvæmt hinu sam­þykkta yfir­tökutil­boði. Hlutur Stoða var met­inn á 12,7 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót og 15,8 millj­arða króna í lok júní síð­ast­lið­ins. Hann hefur því hækkað um rúma fimm millj­arða króna á tæpum tíu mán­uðum og um tvo millj­arða króna frá því í sumar. Hlut­hafar Stoða munu því fá mikla ávöxtun á hlut sinn.

Mikil viðskipti með hluti í Stoðum fyrr á þessu ári

En hverjir eiga eig­in­lega Stoðir? Flestir muna eftir félag­inu þegar það hét FL Group og fór með him­in­skautum fyrir banka­hrun sem eitt umsvifa­mesta fjár­fest­inga­fé­lag banka­bólunnar. Þegar Glitnir, stærsta eign FL Group, féll þá var ljóst að félagið myndi ekki lifa af. Það fór í greiðslu­stöðvun og síðar í gegnum nauða­samn­inga þar sem kröfu­hafar eign­uð­ust félagið. Stærstur þeirra var Glitnir, bank­inn sem félagið hafði átt stóran hlut í.

Síðustu ár hafa Stoðir hægt og rólega selt eignir sínar og greitt afrakst­ur­inn til kröfu­hafa.

Í dag er hlut­ur­inn í Refresco eina eft­ir­stand­andi eign Stoða. Og í vor áttu sér stað umtals­verð við­skipti með hluti í félag­inu. Tvö félög, S121 ehf. og S122 ehf., eign­­uð­ust meiri­hluta í Stoð­­um. Sam­an­lagt eiga þessi tvö félög 50,15 pró­sent hlut. Sá aðili sem seldi þeim stærstan hlut var GlitnirHoldco, félag utan um eft­ir­stand­andi eignir Glitnis. Það félag átti yfir 40 pró­sent í Stoðum en á nú ekk­ert.

Ómögu­legt hefur verið að nálg­ast nákvæmar upp­lýs­ingar um hvert kaup­verðið var. Hvorki Stoðir né GlitnirHoldco hafa viljað upp­lýsa um það. Fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar úr fyr­ir­tækja­skrá benda þó til þess að félögin tvö hafi greitt 4,8 millj­arða króna fyrir 48,73 pró­sent hlut. Miðað við það verð má ætla að mark­aðsvirði Stoða væri um tíu millj­arðar króna þegar við­skiptin áttu sér stað.

Miðað við yfir­tökutil­boðið sem nú hefur verið sam­þykkt virð­ist ljóst að hóp­­ur­inn sem keypti hlut­inn í Stoðum snemma á þessu ári, í við­­skiptum sem litlar upp­­lýs­ingar fást um, hefur hagn­ast mjög vel á fjár­­­fest­ingu sinni.

Stjórn­­­ar­­menn úr TM

En hverjir eru í þessum hópi? S121 og S122 eru í eigu fjög­­urra einka­hluta­­fé­laga og eins skráðs félags, Trygg­inga­mið­­stöðv­­­ar­inn­­ar. Fé­lögin fjögur heita Helg­ar­fell ehf., Esju­­­borg ehf., Einir ehf. og GGH ehf. Þrjú þeirra, eru í eigu aðila sem eru líka stórir hlut­hafar í Trygg­ing­ar­mið­stöð­inni. Og eig­endur þeirra voru margir hverjir lyk­il­­menn í FLGroup á árunum fyrir hrun.

Esju­­­borg er í 50 pró­­­sent eigu félags sem heitir Jökla­­­borg. Það er skráð í 100 pró­­­sent eigu Jóhanns Arn­­­ars Þór­­­ar­ins­­­son­­­ar, for­­­stjóra og eins stærsta eig­anda veit­ing­­­aris­ans Foodco. Hinn helm­ing­­­ur­inn í Esju­­­borg er í eig Riverside Capital SARL, félags sem er skráð í Lúx­em­borg. Sam­­­kvæmt Pana­ma­skjöl­unum er það félag í end­an­­­legri eigu Fortown Corp, félags skráð á Möltu. Eig­andi þess félags er Örvar Kærne­sted. RiversideCapital á líka 2,63 pró­­­sent hlut í Trygg­inga­mið­­­stöð­inni í gegnum íslenska félagið Riverside Capital ehf. Hann situr einnig í stjórn Trygg­inga­mið­­­stöðv­­­­­ar­inn­­­ar. Örvar var yfir starf­­­semi FL Group í London um tíma fyrir banka­hrun og þar áður hjá Kaup­­­þingi í níu ár. Hann er nú umsvifa­­­mik­ill fjár­­­­­fest­­­ir. Hann sett­ist í stjórn Stoða á síð­­­asta aðal­­­fundi félags­­­ins, se fór fram 21. apríl síð­­­ast­lið­inn.

Einar Örn Ólafs­­­son er líka á meðal eig­enda Trygg­inga­mið­­­stöðv­­­­­ar­inn­­­ar. Hann á 2,76 pró­­­sent hlut í henni í gegnum félag sitt Einir ehf. Það félag er líka á meðal þeirra sem náð hafa yfir­­­ráðum í Stoð­­­um. Einar starf­aði hjá Glitni og síðar Íslands­­­­­banka á árum áður. Hann var meðal ann­­­ars for­­­stöð­u­­­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Íslands­­­­­banka fyrstu mán­uð­ina eftir að bank­inn var end­­­ur­reistur eftir hrun­ið. Hann gerð­ist síðan for­­­stjóri Skelj­ungs í maí 2009 eftir að hafa hætt hjá bank­­­anum vegna trún­­­að­­­ar­brests. Hann er í dag umsvifa­­­mik­ill fjár­­­­­fest­­­ir.

Stærsti ein­staki eig­andi að hlutum í Trygg­inga­mið­­­stöð­inni, að und­an­­­skildum líf­eyr­is­­­sjóðum og sjóðs í stýr­ingu Stefn­is, er félag sem heitir Helg­ar­fell ehf. með 6,34 pró­­­sent hlut. Helg­ar­fell er líka á meðal þeirra félaga sem keyptu stóran hlut í Stoðum með Trygg­ing­ar­mið­stöð­inni á síð­­­­­ustu mán­uð­­­um.

Eig­endur Helg­ar­fells eru Björg Fenger, Kristín Fenger Ver­­­munds­dóttir og Ari Fenger. Björg er eig­in­­­kona Jóns Sig­­­urðs­­­son­­­ar, fyrr­ver­andi for­­­stjóra FL Group/­Stoða. Jón tók við sem stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Stoða á síð­­­asta aðal­­­fundi félags­­­ins fyrir tæpum mán­uði síð­­­­­an.

Fjórða félagið sem er stór eig­andi í S122 og S121 heitir GGH ehf. Eig­endur þess eru Gruppen ehf. (í eigu hol­­­lenska félags­­­ins Golden Gate Mana­gement BV, sem teng­ist Magn­úsi Ármann), Ágúst Már Ármann (faðir Magn­úsar Ármann), og BNB Consulting (fé­lag í eigu Bern­hards Boga­­­son­­­ar, fyrr­ver­andi fram­­­kvæmda­­­stjóra lög­­­fræð­is­sviðs FLGroup) sem á eitt pró­­­sent hlut. Magnús Ármann var á meðal hlut­hafa í FL Groupfyrir hrun og sat í stjórn félags­­­ins.

Sam­­­starfs­að­ili hóps­ins er félagið Tavira Securities sem er í eigu óþekkts hol­­­lensk fjár­­­­­fest­­­is.

Tengsl við for­tíð­ina

Félögin sem notuð voru til að kaupa hluti í Stoðum hafa þegar skipt um stjórn­­­­­ir. Í S121 er Gunnar Sturlu­­­son lög­­­­­maður í stjórn. Hann var lengi vel náinn sam­­­starfs­­­maður Hann­esar Smára­­­son­­­ar, fyrr­ver­andi for­­­stjóra FL Group, var lög­­­­­maður hans, sat í stjórnum og var skráður fram­­­kvæmda­­­stjóri félaga í eigu Hann­es­­­ar. Gunnar er líka í stjórn S122. Þar situr hann ásamt Þor­­­steini M. Jóns­­­syni, sem á árum áður var oft­­­ast kenndur við kók. Þor­­­steinn átti hlut í FL Group fyrir banka­hrun­ið, sat í stjórn félags­­­ins og tók við sem stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Glitnis um tíma eftir að FL Group og tengdir aðilar náðu yfir­­­ráðum yfir bank­an­­­um.

Bæði Jón Sig­­­urðs­­­son og Þor­­­steinn M. Jóns­­­son hafa setið í stjórn Refresco fyrir hönd íslenskra eig­enda. Jón situr þar raunar enn og hefur gert frá 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár