Tyrkir fangelsa flesta blaðamenn

Ekkert land hefur sett fleiri blaða­menn á bak við lás og slá en Tyrkland, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá Amnesty International.

Mótmæli á Taksim-torgi í Istanbul 2013.
Mótmæli á Taksim-torgi í Istanbul 2013. Mynd: EPA

Tyrkland fang­elsar fleiri blaða­menn en nokkur önnur þjóð í heimi, en landið hefur að geyma um þriðj­ung allra blaða­manna heims sem eru á bak við lás og slá. Þetta kemur fram í nýrri her­ferð Amnesty International fyrir frjálsri fjöl­miðlun í Tyrk­landi.

Samkvæmt Amnesty er tján­ing­ar­frelsi í Tyrk­landi í stöðugri og vax­andi hættu, en allt frá valda­ránstil­raun tyrk­neska hers­ins í júlí 2016 eiga fræði­menn, blaða­menn og rit­höf­undar sem eru gagn­rýnir á stjórn­völd þar í landi hættu á lög­sókn, hót­unum, áreiti og rit­skoðun.

Í kjöl­far valda­ránstil­raun­ar­innar setti rík­is­stjórnin á neyð­ar­lög í land­inu sem leiddi meðal ann­ars til lok­unar á 180 fjöl­miðlum. Í her­ferð Amnesty er aðgerðum tyrk­neskra stjórn­valda lýst sem „dauða blaða­mennsku.“Þar er einnig kraf­ist enda­loka neyð­ar­stjórn­ar­innar í Tyrk­landi auk lausnar fang­els­aðra blaða­manna og þeirra sem sitja í varð­haldi fram að rétt­ar­höldum.

Kristinn Hrafns­son blaða­maður bendir á ákallið í stöðu­upp­færslu á Facebook og segir árangur rit­skoð­un­ar­stefnu tyrk­nesku rík­is­stjórn­ar­innar mega sjá í úrslitum kosn­inga helg­ar­innar. Kjarninn fjall­aði um þau úrslit fyrr í dag, en þar fékk flokkur Recep Tayyip Erdogan, for­seta Tyrk­lands, 52,5 pró­sent atkvæða og var hann því end­ur­kjör­inn.

[links]Tyrkland og EFTA-ríkin und­ir­rit­uðu upp­færðan frí­versl­un­ar­samn­ing á milli sín í Skaga­firði í morgun, en þar héldu Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra og Nihat Zeybekci, efna­hags­mála­ráð­herra Tyrk­lands, tví­hliða fund. Á fund­inum var meðal ann­ars rætt um mann­rétt­indi og mál Hauks Hilm­ars­sonar sem tal­inn er hafa fallið í hern­aði Tyrkja í Afrin-hér­aði fyrr á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tjáningarfrelsi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár