Erdogan lýsir yfir sigri – „Allir ríkisborgarar landsins sigurvegarar“

Recep Tayyip Erdogan var kjör­inn for­seti Tyrk­lands í gær en hann fékk 52,5 pró­sent atkvæða. En hvaða atburða­rás leidda upp að þessu augna­bliki? Kjarninn kann­aði málið.

Recep Tayyip Erdogan fagnar með stuðningsmönnum sínum í gær.
Recep Tayyip Erdogan fagnar með stuðn­ings­mönnum sínum í gær. Mynd: EPA

Recep Tayyip Erdogan var kjör­inn for­seti Tyrk­lands í gær. Hann fékk 52,5 pró­sent atkvæða. Þetta stað­festi for­maður kjör­stjórnar í gær­kvöldi. Þar af leið­andi þarf ekki að kjósa að nýju milli tveggja efstu eftir tvær vikur. Muharrem Ince, leið­togi Lýð­ræð­is­flokks­ins CHP, fékk 30,7 pró­sent en kjör­stjórn mun ekki birta loka­nið­ur­stöð­urnar úr for­seta­kosn­ing­unum fyrr en föstu­dag­inn næst­kom­andi.

Erdogan lýsti í gær­kvöldi yfir sigri í kosn­ing­unum og sagði að þjóðin hefði treyst sér til að sitja eitt kjör­tíma­bil til við­bótar. Hann hélt ræðu á svölum höf­uð­stöðva AK-flokks­ins í höf­uð­borg Tyrk­lands. „Sig­ur­veg­ari þess­ara kosn­inga er hver og einn ein­stak­lingur á meðal 81 millj­óna rík­is­borg­ara lands­ins,“ sagði hann. Flokkur hans Rétt­lætis- og þró­un­ar­flokk­ur­inn AK, fékk enn fremur flest atkvæði í þing­kosn­ing­unum en kosið var til þings á sama tíma. Þegar 99 pró­sent atkvæða höfðu verið talin var flokk­ur­inn með 42 pró­sent atkvæða en CHP með 23 pró­sent. Kjörsókn var góð, eða 87 pró­sent.

Kjarninn rifj­aði upp sögu Erdogans og atburði síð­ast­lið­inna ára.

Víðtækar stjórnarskrárbreytingar samþykktar

Þann 10. des­em­ber árið 2016 setti for­sæt­is­ráð­herra Tyrk­lands, Binali Yildirim, fram til­lögur að víð­tækum stjórn­ar­skrár­breyt­ingum sem höfðu það að mark­miði að safna öllu fram­kvæmd­ar­valdi stjórn­sýsl­unnar í hendur Erdogan. Breyt­ing­arnar voru sam­þykkt­ar, fyrst af þing­inu og síðar í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, með naumum meiri­hluta í apríl á síð­asta ári. Þær tákn­uðu stærstu umrót í stjórn­ar­fari lands­ins frá stofnun lýð­veld­is­ins af Mustafa Kemal Ata­türk árið 1923 eftir sex hund­ruð ára keis­ara­dæmi Ottómana.

Stjórn­skipan lands­ins var breytt með afger­andi hætti; emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra hefur verið afnumið og hefur fram­kvæmda­vald færst að fullu til emb­ætti for­seta sem mun einnig hafa fullt vald yfir gerð fjár­mála­á­ætl­ana, og hafa völd for­seta yfir dóms­vald­inu auk­ist til muna og stjórnar hann nú skipan dóm­ara. For­seta lands­ins er ekki lengur skylt að rjúfa tengsl sín við stjórn­mála­flokka og munu þing­menn ekki lengur geta beint spurn­ingum til for­set­ans. Þá hafa reglur varð­andi van­traust­s­til­laga til for­set­ans verið hertar og þurfa núna 60 pró­sent þing­manna að sam­þykkja hana en loka­á­kvörðun verður í höndum stjórn­ar­skrár­réttar sem er að mestu leyti skip­aður af dóm­urum útnefndum af for­set­anum sjálf­um. Það má segja að stjórn­ar­skrár­breyt­ing­arnar geri Erdogan að ein­ræð­is­herra og mun hann tækni­lega séð geta gegnt emb­ætti for­seta fram til árs­ins 2034.

Til­raun Erdogan er nýr kafli í lang­vinnri bar­áttu hans til að auka völd sín og hafa ýmsir afdrifa­ríkir atburðir bæði inn­an­lands og utan stuðlað að auknu rými fyrir ein­ræðistakta í landi sem fyrir rúmum ára­tug síðan stóð í umfangs­miklum lýð­ræð­is­legum umbótum til að upp­fylla skil­yrði ESB-að­ildar.

Fékk ekki að taka við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra

Oddur Stef­áns­son skrif­aði frétta­skýr­ingu um ein­ræðistakta Erdogan fyrir Kjarnann, en í henni kemur fram að Erdogan hafi verið vin­sæll borg­ar­stjóri í Ist­an­búl á tíunda ára­tugn­um. Hann stofn­aði árið 2001 AK-­flokk­inn sem vann stór­sigur í þing­kosn­ing­unum 2002.

Erdogan sjálfur gat ekki tekið við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra strax vegna fang­els­is­dóms sem hann hlaut árið 1999 fyrir hat­urs­orð­ræðu eftir að hann þuldi ljóð eftir þjóð­ern­is­sinn­ann Ziya Gökalp í ræðu til stuðn­ings­manna sinna. Laga­breyt­ingar ári seinna gerðu það að verkum að hann fékk að taka við emb­ætt­inu árið 2003 en ljóst var að hin íslamska þjóð­ern­is­stefna sem ein­kenndi hug­mynda­fræði Erdogan ætti litla sam­leið með hinu ver­ald­lega lýð­veldi sem Ata­türk stofn­aði og sem tyrk­neski her­inn hefur sögu­lega álitið sem sitt hlut­verk að vernda.

Erdogan sat á for­sæt­is­ráð­herra­stóli í ell­efu ár áður en hann varð for­seti árið 2014 en lífs­kjör í Tyrk­landi höfðu stór­batnað á þessu tíma­bili. Frá stofnun AK-­flokks­ins hefur hann haft meiri­hluta á þingi í alls 13 ár og virð­ist vera að Erdogan, sem lét hin ó­hugn­an­leg­u ­tit­il­orð falla í upp­haf valda­tíð sinn­ar: „Lýð­ræði er eins og lest; þú ferð úr henni þegar þú ert komin á áfanga­stað,“ telji að tími sé kom­inn til að stíga úr lýð­ræð­is­lest­inni.

Hryðju­verka­tíðnin í Tyrk­landi hefur auk­ist til muna síð­ast­liðin ár en talið er að sjálf­stæð­is­hreyf­ing Kúr­da, PKK, hafi staðið fyrir til­ræði þar sem 400-kílogramma sprengja sprakk í nálægð við leik­vang Besikta­s-­fót­boltaliðs­ins í Ist­an­búl og drap 44 manns þann 10. des­em­ber árið 2016, og bíl­sprengju sem sprakk fyrir utan Erci­yes-há­skóla í Kayser­i-­fylki þann 17. des­em­ber sama ár sem drap 13 manns, en einnig hefur Íslamska ríkið staðið fyr­ir hryðju­verka­ára­sum á borð við sprengju­til­ræðin á Ata­türk-flug­vell­inum í Ist­an­búl um sum­arið þar sem 41 manns misstu líf­ið.

Misheppnað valdarán

[links]Þann 15. júlí fyrir tveimur árum reyndi hópur her­for­ingja að ræna völdum í land­inu en mistókst eftir að hafa reynt að ná stjórn á sam­skipta­æðum lands­ins og þingi ásamt því að reyna að hand­sama Erdogan sjálf­an. Talið er að fleiri hópar innan hers­ins hafi komið sér saman um valda­ránstil­raun­ina en Erdogan hef­ur lagt alla sök á Cema­at-hóp­inn, íslamska hreyf­ingu undir stjórn klerks­ins Fet­hullah Gülen sem hefur verið í útlegð í Penn­syl­vani­a-­fylki í Banda­ríkj­unum frá árinu 1999. Hreyf­ing Gülen er ýmist kennd við trú eða ákveðna túlkun á hlut­verki og upp­bygg­ingu Tyrk­lands, og rekur tyrk­neska skóla út um allan heim. Gülenistar eru fjöl­mennir og mátti finna víðs veg­ar í valda­miklum emb­ættum hjá hinu opin­bera og í við­skipta­lífi Tyrk­lands.

Neyð­ar­á­standi var lýst yfir í kjöl­far valda­ránstil­raun­ar­innar og á skömmum tíma hafði Erdogan látið hand­taka um 40 ­þús­und ein­stak­linga sem taldir voru tengj­ast atburð­unum á einn eða annan hátt. Þá hafði um eitt hund­rað þús­und opin­berum starfs­mönnum verið sagt upp ásamt þús­unda blaða­manna og fræði­manna. Jafn­vel áður en valda­ránstil­raunin átti sér stað voru flestir fjöl­miðlar í land­inu hlið­hollir eða jafn­vel bein­línis stjórnað af stuðn­ings­mönnum AK-­flokks­ins en í kjöl­far hennar hefur ver­ið sótt enn harð­ara að óháðum fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár