Naumur og umdeildur sigur Erdogan

Stjórn­ar­skrár­breyt­ingar sem afnema emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra og færa aukin völd í hendur for­seta Tyrk­lands voru sam­þykktar með naumum meiri­hluta í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Stærstu borg­irnar kusu gegn breyt­ing­unum og ÖSE hefur gagn­rýnt fram­kvæmd kosn­ing­anna.

Recep Tayyip Erdoğan sér kannski ekkert athugavert við framkvæmd kosninganna sem færðu honum nokkurs konar alræðisvald. En ÖSE hefur gagnrýnt þær og mikil mótmæli hafa verið í stærstu borgun Tyrklands, þar sem meirihluti kaus gegn breytingunum.
Recep Tayyip Erdoğan sér kannski ekk­ert athuga­vert við fram­kvæmd kosn­ing­anna sem færðu honum nokk­urs konar alræð­is­vald. En ÖSE hefur gagn­rýnt þær og mikil mót­mæli hafa verið í stærstu borgun Tyrk­lands, þar sem meiri­hluti kaus gegn breyt­ing­unum. Mynd: EPA

Recep Tayyip Erdoğan hefur um ára­bil lagt grunn­inn að stjórn­ar­skrár­breyt­ing­unum sem sam­þykktar voru í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í síð­ustu viku. Stjórn­skipan lands­ins hefur verið breytt með afger­andi hætti; emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra hefur verið afnumið og hefur fram­kvæmda­vald færst að fullu til emb­ætti for­seta sem mun einnig hafa fullt vald yfir gerð fjár­mála­á­ætl­ana, og hafa völd for­seta yfir dóms­vald­inu auk­ist til muna og stjórnar hann nú skipan dóm­ara. Forseta lands­ins er ekki lengur skylt að rjúfa tengsl sín við stjórn­mála­flokka og munu þing­menn ekki lengur geta beint spurn­ingum til for­set­ans. Þá hafa reglur varð­andi van­traust­s­til­laga til for­set­ans verið hertar og þurfa núna 60% þing­manna að sam­þykkja hana en loka­á­kvörðun verður í höndum stjórn­ar­skrár­réttar sem er að mestu leyti skip­aður af dóm­urum útnefndum af for­set­anum sjálfum. Það má segja að stjórn­ar­skrár­breyt­ing­arnar geri Erdogan að ein­ræð­is­herra og mun hann tækni­lega séð geta gegnt emb­ætti for­seta fram til árs­ins 2034.

Á tæpasta vaði

Stjórn­ar­skrár­breyt­ing­arnar voru sam­þykktar með 51,3% atkvæða og var kjör­sókn

yfir 80%. Kjós­endur í þremur stærstu borgum lands­ins, Istanbúl, Ankara og Izmir, flestum hafn­ar­borgum lands­ins, ásamt stórum meiri­hluta Kúrda, kusu gegn breyt­ing­unum og gefa nið­ur­stöður atkvæða­greiðsl­unnar í skyn að þjóðin er mjög tví­skipt gagn­vart Erdogan. Sá naumi sigur sem Erdogan bar úr býtum sýnir tak­mark­aðan hljóm­grunn fyrir afdrifa­rík­ustu breyt­ingar á stjórn­skipan í land­inu í ára­tugi.

Póli­tískar kring­um­stæður atkvæða­greiðsl­unnar höll­uðu mjög á stjórn­ar­and­stöð­una og var fram­kvæmd kosn­inga­bar­átt­unnar og atkvæða­greiðsl­unnar ekki í takt við það sem búast má við í lýð­ræð­is­ríkjum. Í fyrsta lagi ríkir enn neyð­ar­á­stand í Tyrk­landi eftir mis­heppn­aða valda­ránstil­raun síð­asta sumar. Eftir að neyð­ar­á­stand­inu var komið á hefur Erdogan staðið í ströngu við að fjar­lægja þús­undir stjórn­ar­and­stæð­inga, blaða­manna og fræði­manna úr emb­ættum. 179 fjöl­miðlum hefur verið lokað á síð­ustu mán­uðum og var kosn­inga­bar­áttan ein­kennd af nán­ast algjörum tak­mörk­unum á fjöl­miðlaum­fjöllun and­stæð­inga breyt­ing­anna. Samkvæmt ÖSE gerði neyð­ar­á­standið að verkum að atkvæða­greiðslan fór fram við aðstæður þar sem póli­tísk grund­vall­ar­rétt­indi voru skert og fjöl­miðla­frelsi lítið sem ekk­ert.

Stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn, Cumhuriyet Halk Partisi (CHP), bað strax í kjöl­far atkvæða­greiðsl­unnar um að nið­ur­stöður þeirra yrðu dæmdar ógildar en kosn­inga­ráð lands­ins hefur til­kynnt að svo verði ekki. CHP hefur þó eitt­hvað til síns máls; kosn­inga­ráðið ákvað á síð­ustu stundu að leyfa taln­ingu ómerktra kjör­seðla og hefur einn kosn­inga­eft­ir­lits­maður Evr­ópu­ráðs­ins tjáð að allt að tvær og hálf millj­ónir atkvæða gætu hafa verið fölsuð sem er næstum tvö­falt fleiri atkvæði en mun­ur­inn var í atkvæða­greiðsl­unni.

Viðbrögð „George“ og „Hans“

Í kjöl­far gagn­rýni erlendra kosn­inga­eft­ir­lits­manna sagði Erdogan að tyrk­neskum stjórn­völdum „væri sama um skoð­anir 'George' og 'Hans'“ því þjóðin hefði tekið skýra ákvörðun. Dræmar und­ir­tektir alþjóða­sam­fé­lags­ins við atkvæða­greiðsl­una lýstu sér í að ein­ungis örfá lönd á borð við Katar, Gíneu, Azerbaijan og Barein hefðu haft sam­band við Erdogan til að óska honum til ham­ingju með sig­ur­inn. Þessi gæða­stimp­ill batn­aði vart af því þegar kom í ljós að for­seti Banda­ríkj­anna, Donald Trump, hafði hringt til Erdogan til að óska honum til ham­ingju þrátt fyrir að utan­rík­is­ráðu­neyti lands­ins hafði veitt heldur dræm­ari við­brögð. Þá hefur for­seti Rúss­lands, Vladimir Putin, gert slíkt hið sama sam­kvæmt heim­ildum Reuters.

Und­ir­tektir í Evrópu hafa verið með öðru sniði. Tals­maður Jean-Claude Juncker, for­seta Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB), sagði að stjórn­völd í Tyrk­landi ættu að rann­saka ásak­anir um kosn­inga­svindl og Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, hvatti Erdogan til að hefja við­ræður við stjórn­ar­and­stöðu og ESB til þess að ræða afleið­ingar nið­ur­stöðu atkvæða­greiðsl­unnar því þær sýndu að tyrk­neska þjóðin væri langt frá því að vera sam­mála um stjórn­ar­skrár­breyt­ing­arnar. Erdogan hefur ekki reynt að kom­ast til móts við áhyggjur leið­toga Evr­ópu­ríkja og sagði í ræðu sinni eftir sig­ur­inn í atkvæða­greiðsl­unni að hann gæti teflt fram annarri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um inn­leið­ingu dauða­refs­ingar í land­inu en ef ræt­ist úr því yrðu líkur Tyrk­lands á aðild að ESB orðnar að engu.

Sigur og ósigur

Erdogan er vafa­laust með pálmann í hönd­unum eftir atkvæða­greiðsl­una sem markar kafla­skipti í tyrk­neskum stjórn­málum. Aukin völd Erdogan munu gera honum kleift að styrkja enn frekar áhrif sín á tyrk­neskt sam­fé­lag og stjórna land­inu eftir eig­inn geð­þótta. Hins leiða nið­ur­stöður atkvæða­greiðsl­unnar að sama skapi í ljós eins konar ósigur. Úr því að næstum því helm­ingur þjóð­ar­innar kaus gegn breyt­ing­unum þrátt fyrir erf­iðar aðstæður stjórn­ar­and­stæð­unnar má segja að erfitt sé að túlka atkvæða­greiðsl­una sem stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við stjórn­ar­flokk Erdogan, Adalet ve Kalkınma Partisi (AKP). Andstaða við breyt­ing­arnar í stærstu borgum lands­ins, og í mörgum kjör­dæmum þar sem AKP hefur haft mikið fylgi, sýndi að stuðn­ingur við Erdogan var minni en hann hefði von­ast eftir. Aukin völd for­seta­emb­ætt­is­ins munu hins vegar gera honum kleift að stjórna land­inu með sterkri hendi sama hvort hljóm­grunnur sé fyrir stefnum hans meðal Tyrkja. Atkvæða­greiðslan hefur borið með sér kostnað sem og ávinn­ing fyrir Erdogan og mun hann þurfa að takast á við aukna spennu inn­an­lands og aukna jað­ar­setn­ingu utan­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár