Einræðistaktar Erdogan

2016 hefur verið við­burða­ríkt ár í Tyrk­landi. Aukin tíðni hryðju­verka­árása, mis­heppnuð valda­ránstil­raun, auknir ein­ræðistaktar hjá for­seta lands­ins, Recep Tayyip Erdogan, og átökin í Sýrlandi hafa sett djúp stjórn­ar­fars­leg spor í land­inu.

Þann 10. des­em­ber setti for­sæt­is­ráð­herra Tyrk­lands, Binali Yildirim, fram til­lögur að víð­tækum stjórn­ar­skrár­breyt­ingum sem hafa það að mark­miði að safna öllu fram­kvæmd­ar­valdi stjórn­sýsl­unnar í hendur Erdogan. Ef breyt­ing­arnar verða sam­þykktar, fyrst af þing­inu og síðar í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, munu þær tákna stærstu umrót í stjórn­ar­fari lands­ins frá stofnun lýð­veld­is­ins af Mustafa Kemal Atatürk árið 1923 eftir sex hund­ruð ára keis­ara­dæmi Ottómana.

Tilraun Erdogan er nýr kafli í lang­vinnri bar­áttu hans til að auka völd sín og hafa ýmsir afdrifa­ríkir atburðir bæði inn­an­lands og utan stuðlað að auknu rými fyrir ein­ræðistakta í landi sem fyrir rúmum ára­tug síðan stóð í umfangs­miklum lýð­ræð­is­legum umbótum til að upp­fylla skil­yrði ESB-aðildar. Aðdrag­andi þess­arar þró­unar er langur en atburðir á þessu ári hafa hraðað henni svo um munar.

"Lýðræði er eins og lest; þú ferð úr henni þegar þú ert komin á áfanga­stað"

Erdogan, sem var vin­sæll borg­ar­stjóri í Istanbúl á tíunda ára­tugnum, stofn­aði árið 2001 AK-flokk­inn (Rétt­lætis- og þró­un­ar­flokk­ur­inn) sem vann stór­sigur í þing­kosn­ing­unum 2002 en Erdogan sjálfur gat ekki tekið við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra strax vegna fang­els­is­dóms sem hann hlaut árið 1999 fyrir hat­urs­orð­ræðu eftir að hann þuldi ljóð eftir þjóð­ern­is­sinn­ann Ziya Gökalp í ræðu til stuðn­ings­manna sinna. Laga­breyt­ingar ári seinna gerðu það að verkum að hann fékk að taka við emb­ætt­inu árið 2003 en ljóst var að hin íslamska þjóð­ern­is­stefna sem ein­kenndi hug­mynda­fræði Erdogan ætti litla sam­leið með hinu ver­ald­lega lýð­veldi sem Atatürk stofn­aði og sem tyrk­neski her­inn hefur sögu­lega álitið sem sitt hlut­verk að vernda.

Erdogan sat á for­sæt­is­ráð­herra­stóli í ell­efu ár áður en hann varð for­seti árið 2014 en lífs­kjör í Tyrk­landi hafa stór­batnað á þessu tíma­bili. Frá stofnun AK-flokks­ins hefur hann haft meiri­hluta á þingi í alls 13 ár, nú síð­ast í kjöl­far þing­kosn­inga í nóv­em­ber 2015, og virð­ist vera að Erdogan, sem lét hin óhugn­an­legu tit­il­orð hér að ofan falla í upp­haf valda­tíð sinnar, telji að tími sé kom­inn til að stíga úr lýð­ræð­is­lest­inni.

Djöfullinn er í kringumstæðunum

Að lýsa kring­um­stæðum sem það sér­stökum að þær krefj­ist sér­stakra úrræða er vin­sælt mælsku­bragð til að ná í gegn vafasömum umbótum. Þeir dramat­ísku atburðir sem hafa átt sér stað í Tyrk­landi und­an­farin tvö ár eru án efa sér­stakir í þess­ari skil­grein­ingu.

Hryðju­verka­tíðnin í Tyrk­landi hefur auk­ist til muna síð­ustu tvö ár; talið er að sjálf­stæð­is­hreyf­ing Kúrda, PKK, hafi staðið fyrir til­ræði þar sem 400-kílogramma sprengja sprakk í nálægð við leik­vang Besiktas-fót­boltaliðs­ins í Istanbúl og drap 44 manns þann 10. des­em­ber, og bíl­sprengju sem sprakk fyrir utan Erciyes-háskóla í Kayseri-fylki þann 17. des­em­ber sem drap 13 manns, en einnig hefur Íslamska ríkið staðið fyrir hryðju­verka­ára­sum á borð við sprengju­til­ræðin á Atatürk-flug­vell­inum í Istanbúl í júní þar sem 41 manns misstu lífið.

Að ein­hverju leyti má rekja aukna hryðju­verka­tíðni til ítaka Tyrk­lands í borg­ara­stríð­inu í Sýrlandi þar sem stefna Tyrkja var upp­haf­lega að styðja ýmsar upp­reisn­ar­hreyf­ingar í bar­átt­unni gegn bæði Íslamska rík­inu ann­ars vegar og herjum Bashar al-Assad, for­seta lands­ins, hins vegar en afstaða þeirra gagn­vart þeim síð­ar­nefndu hefur breyst í kjöl­far viða­mik­ils stuðn­ings Rúss­lands við Assad. Styrkur hinna auknu sam­vinnu Tyrkja og Rússa í Sýrlandi kom skýrt til greina í tempruðum við­brögðum leið­toga land­anna tveggja við til­ræð­inu gegn sendi­herra Rúss­lands í Tyrk­landi, Andrei Karlov, sem var skot­inn til bana á lista­gall­eríi í Ankara, höf­uð­borg Tyrk­lands, í síð­ustu viku. Þá hafa tengsl Erdogan við PKK versnað mikið eftir að frið­ar­við­ræður runnu í sand­inn sum­arið 2015. Afskipti PKK í borg­ara­stríð­inu í Sýrlandi flæktu við­ræð­urnar tals­vert og and­stæð­ingar AK-flokks­ins halda því einnig fram að Erdogan hafi vilj­andi bundið enda á þær til þess að koma til móts við harð­línu­væng hers­ins og þjóð­ern­is­sinna fyrir kosn­ing­arnar 2015.

Nornaveiðar nýja soldánsins

Þann 15. júlí reyndi hópur her­for­ingja að ræna völd í land­inu en mistókst eftir að hafa reynt að ná stjórn á sam­skipta­æðum lands­ins og þingi ásamt því að reyna að hand­sama Erdogan sjálfan. Talið er að fleiri hópar innan hers­ins hafi komið sér saman um valda­ránstil­raun­ina en Erdogan hefur lagt alla sök á Cemaat-hóp­inn, íslamska hreyf­ingu undir stjórn klerks­ins Fet­hullah Gülen sem hefur verið í útlegð í Penn­syl­vania-fylki í Banda­ríkj­unum frá árinu 1999. Hreyfing Gülen er ýmist kennd við trú eða ákveðna túlkun á hlut­verki og upp­bygg­ingu Tyrk­lands, og rekur tyrk­neska skóla út um allan heim. Gülenistar eru fjöl­mennir og mátti finna víðs vegar í valda­miklum emb­ættum hjá hinu opin­bera og í við­skipta­lífi Tyrk­lands. Skiptar skoð­anir eru á því hversu sam­held­inn hóp­ur­inn sé og hvort hann vinni í raun að til­teknum stjórn­mála­legum mark­miðum, en Erdogan sá tæki­færi í kjöl­far valda­ránstil­raun­ar­innar.

Neyð­ar­á­standi, sem reyndar er enn í gangi í Tyrk­landi, var lýst yfir í kjöl­far valda­ránstil­raun­ar­innar og á skömmum tíma hafði Erdogan látið hand­taka um 40 þús­und ein­stak­linga sem taldir voru tengj­ast atburð­unum á einn eða annan hátt. Þá hafa um eitt hund­rað þús­und opin­berum starfs­mönnum verið sagt upp ásamt þús­unda blaða­manna og fræði­manna. Jafnvel áður en valda­ránstil­raunin átti sér stað voru flestir fjöl­miðlar í land­inu hlið­hollir eða jafn­vel bein­línis stjórnað af stuðn­ings­mönnum AK-flokks­ins en í kjöl­far hennar hefur verið sótt enn harð­ara að óháðum fjöl­miðlum.

Erdogan hefur á margan hátt lagt grunn­inn til að greiða fyrir stjórn­ar­skrár­breyt­ing­unum sem kosið verður um á næsta ári en það má segja að neyð­ar­á­standið sem ríkir í land­inu í dag sé ákveð­inn for­smekkur á því hvernig stjórn Erdogans muni líta út eftir breyt­ing­arnar. Til að koma breyt­ing­unum í gegn þarf hann að minnsta kosti fjórtán þing­menn frá stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum til að kjósa með breyt­ing­unum til við­bótar við sinn eig­inn þing­flokk, og mögu­lega munu vin­sældir hans meðal almenn­ings lækka á næstu mán­uðum í kjöl­far efna­hags­legrar stöðn­unar á þessu ári. Því er langt í frá gefið að honum tak­ist til en hann hefur sterkan með­byr vegna atburða árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár