Tyrkneski herinn er sagður í fréttum erlendra fjölmiðla, þar á meðal breska ríkisútvarpsins BBC, hafa tekið völdin víða í Tyrklandi. Þetta kom einnig fram í stuttri tilkynningu frá hernum á tyrknesku fréttastöðinni NTV.
Yfirvöld segja að þetta sé „ólögleg aðgerð“ og það þeir sem beri ábyrgð á henni fá þyngstu refsingu fyrir. Herinn hefur ítrekað í yfirlýsingum, að hann hafi steypt Recep Tayyip Erdogan forseta landsins af stóli, og fari nú með völdin.
Fréttir hafa borist af því í kvöld að herþotum hafi verið flogið í lágflugi yfir borginni. Ataturk-flugvöllurinn í Istanbúl hefur verið hertekinn og samgönguæðum í borginni hefur verið lokið af hernum. Lýst hefur verið yfir útgöngubanni, og lögregluþjónar verið handteknir.
Þá sjást skriðdrekar á götum úti, og meðal annars í nálægt við opinberar byggingar í Istanbúl.
Erdogan forseti ræddi við sjónvarpsstöð í Tyrklandi nú í kvöld, en hann er í sumarfríi við Svartahafið. Hann notaði forritið Facetime til þess að ræða við fjölmiðilinn, eins og sjá má hér að neðan. Hann hvatti Tyrki til þess að fara út á götur og sýna ríkisstjórninni stuðning. Ekkert vald væri eins sterkt og vald fólksins.
Borgaraþjónusta íslenska utanríkisráðuneytisins hefur verið virkjuð vegna fregna af valdaráninu, og er þeim tilmælum beint til íslenskra ferðamanna í Tyrklandi og Íslendinga sem búa í landinu að láta vita af sér. Flestar samskiptaleiðir aðrar en símalínur virðist lokaðar í Tyrklandi, og tekið hefur gildi útgöngubann í helstu borgum. Utanríkisráðuneytið beinir því til fólks að halda sig innandyra og fylgja fyrirmælum tyrkneskra yfirvalda.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir