Tíu staðreyndir um Tyrkland

Tyrkland hefur verið mið­punktur átaka og erf­ið­leika á und­an­förnum miss­erum og mikið í heims­frétt­unum, eftir mis­heppn­aða valda­ránstil­raun í júlí.

Tyrkland er mið­punktur póli­tískrar ólgu þessi miss­erin, og hefur auk þess verið vett­vangur tíðra hryðju­verka á þessu ári. Um helg­ina dóu yfir 50 manns þegar barn sprengdi sig í loft upp í brúð­kaups­veislu kúrda í borg­inni Gaziantep, skammt frá landa­mær­unum við Sýrland. Í sumar hafa yfir 100 manns dáið í tveimur mann­skæðum hryðju­verkum.

Erdogan for­seti hefur tekið póli­tíska and­stæð­inga sína úr umferð, einn af öðrum, eftir mis­heppn­aða valda­ránstil­raun í júlí.

Hvað ein­kennir þetta stóra land á mörkum Evrópu og Asíu? Kjarninn tók saman tíu stað­reyndir um Tyrkland.

1. Tyrkland er eitt af fjöl­menn­ustu ríkjum Evrópu en í lok árs 2015 bjuggu þar tæp­lega 76 millj­ónir manna. Til sam­an­burðar voru íbúar Bretland 65 millj­ónir á sama tíma og Þýska­lands 81 milljón. Tyrkland liggur á mörkum Evrópu og Asíu.

2. Tyrkland á landa­mæri að Sýrlandi, Írak, Íran, Armeníu, Azerbadjan, Georgíu, Búlgaríu og Grikk­landi. Land­fræði­leg staða lands­ins hefur gert landið að mið­punkti áhrifa­svæðis átaka fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Borg­ara­styrj­öldin í Sýrlandi hefur sér­stak­lega haft mikil áhrif í Tyrk­landi, þar sem straumur flótta­fólks til lands­ins hefur verið nær óstöðv­andi.

3. Ekkert land í Evrópu hefur tekið á móti fleiri flótta­mönnum frá stríðs­hrjáðum svæðum í Sýrlandi, Írak, Afganistan og norð­ur­hluta Afríku en Tyrkland. Samtals eru 2,7 millj­ónir flótta­manna í Tyrk­landi sem hafa komið frá Sýrlandi, en heild­ar­fjöld­inn er yfir þrjár millj­ónir. Til sam­an­burðar er fjöld­inn mun lægri í öðrum Evr­ópu­löndum. Mið­jarð­ar­hafs­löndin Grikk­land og Ítala, sem hafa tekið á móti miklum fjölda flótta­manna og verið mikið til umræðu sökum þessa, eru þar með­talin.

4. Recep Tayyip Erdoğan er for­seti Tyrk­lands. Hann hefur gegnt því emb­ætti frá árinu 2014. Hann var for­sæt­is­ráð­herra frá árinu 2003 og fram að emb­ætt­is­töku sinni sem for­seti, og hefur því verið í með póli­tíska valda­þræði í höndum sínum lengi. Hann er fæddur 26. febr­úar 1954.

5. Í júlí var valda­ránstil­raun kæfð svo til í fæð­ingu, og hafa stjórn­völd beint spjót­unum að and­stæð­ingum Erdogans síðan. Yfir 20 þús­und ein­stak­lingar hafa verið hand­teknir í tengslum við valda­ránstil­raun­ina. Þá hafa yfir 10 þús­und kenn­arar í háskólum, dóm­ara við dóm­stóla og yfir­menn í hernum, misst störf sín og á stóri hluti þess hóps yfir höfði sér máls­höfðun vegna meintrar aðildar að valda­ránstil­raun­inni.

6. Helsti and­stæð­ingur Erdogans, sem hann hefur alfarið kennt um valda­ránstil­raun­ina, er klerk­ur­inn Fet­hullah Gulen. Hann býr í borg­inni Saylors­burgh í Penn­syl­vaníu ríki. Erdogan hefur farið fram á það form­lega, að Gulen verði fram­seldur en við því hafa banda­rísk yfir­völd ekki orðið. Gulen er 75 ára, fyrr­ver­andi sam­herji Erdogans, og hefur verið í sjálf­skip­aðri útlegð und­an­farin ár.

7. Gulen hefur harð­neitað því að hafa komið að valda­ránstil­raun­inni, og segir að allt bendi til þess að hún hafi verið svið­sett. Hann og hans stuðn­ings­menn hafi ávallt for­dæmt beit­ingu her­valds í Tyrk­landi og vopnuð valda­ránstil­raun sé eins víðs­fjarri hug­myndum hans og hugs­ast getur. Hann segir Erdogan ekki verið í takt við raun­veru­leik­ann.

8. Atvinnu­leysi mælist nú 10,1 pró­sent, sem er svipað og nemur með­al­tal­inu hjá Evr­ópu­sam­bands­ríkj­unum. Sé horft sér­stak­lega til sam­an­burðar við önnur ríki við Mið­jarð­ar­hafið, þá er atvinnu­leysi fremur lágt. Í Grikk­landi hefur það verið yfir 20 pró­sent, frá árinu 2010, og sömu sögu eru að segja um Spán. Á Ítalíu er atvinnu­leysið nú rúm­lega tólf pró­sent.

9. Í fyrra var hag­vöxt­ur­inn í land­inu um fjögur pró­sent miðað við árið á undan. Verð­bólgan mæld­ist að með­al­tali 7,7 pró­sent í fyrra og voru stýri­vextir í kringum 7,5 pró­sent.

10. Miklar sveiflur hafa ein­kennt verð­bréfa­markað í Tyrk­landi, sem er bæði líf­legur og stór. Til marks um það þá lækk­uðu hluta­bréf um 16,3 pró­sent í fyrra eftir að hafa hækkað um 26,4 pró­sent árið á undan. Árið 2012 var gríð­ar­lega sókn­arár á verð­bréfa­mörk­uðum í Tyrk­landi, en á því ári hækk­uðu hluta­bréf um 52,6 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár