Guðlaugur Þór hittir efnahagsmálaráðherra Tyrklands

Utan­rík­is­ráð­herra fund­aði með Nihat Zeybekci, efna­hags­mála­ráð­herra Tyrk­lands í morgun. Ræddu þeir meðal ann­ars mál Hauks Hilm­ars­sonar.

Guðlaugur Þór Þórðarson og Nihat Zeybekci efnahagsmálaráðherra Tyrklands.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Nihat Zeybekci efna­hags­mála­ráð­herra Tyrk­lands. Mynd: Þorfinnur Ómarsson/Utanríkisráðuneytið

Mann­rétt­indi og mál Hauks Hilm­ars­sonar voru á meðal þess sem Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, og Nihat Zeybekci, efna­hags­mála­ráð­herra Tyrk­lands, ræddu á fundi í Skaga­firði í morgun. Guð­laugur Þór kom enn fremur á fram­færi gagn­rýni á hernað Tyrkja í Norður-Sýrlandi.

Þetta kemur fram í frétt utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Zeybekci er staddur hér á landi í tengslum við ráð­herra­fund EFTA sem nú stendur yfir á Sauð­ár­króki en í morgun var skrifað undir upp­færðan frí­versl­un­ar­samn­ing EFTA og Tyrk­lands. Áður en samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður áttu þeir Guð­laugur Þór stuttan fund, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu.

„Ráð­herr­arnir ræddu meðal ann­ars tví­hliða sam­skipti Íslands og Tyrk­lands og nýaf­staðnar kosn­ingar í Tyrk­landi. Þá kom utan­rík­is­ráð­herra á fram­færi gagn­rýni íslenskra stjórn­valda á stöðu mann­rétt­inda í Tyrk­landi og hern­að­ar­að­gerðir Tyrkja í Afrin-hér­aði í Sýrlandi. Loks tók Guð­laugur Þór upp við tyrk­neska ráð­herr­ann mál Hauks Hilm­ars­sonar sem tal­inn er hafa fallið í hern­aði Tyrkja í Afrin-hér­aði fyrr á þessu ári. Zeybekci tók mála­leit­an­inni vel en hafði engar nýjar upp­lýs­ingar sem varpað gætu ljósi á málið, en hét því að tyrk­nesk yfir­völd myndu áfram veita aðstoð sína við að upp­lýsa um afdrif Hauks,“ segir í frétt­inni.

Erdogan áfram forseti

Kjarninn greindi frá því í morgun að Recep Tayyip Erdogan hefði verið kjör­inn for­seti Tyrk­lands í gær. Hann fékk 52,5 pró­sent atkvæða og þar af leið­andi þarf ekki að kjósa að nýju milli tveggja efstu eftir tvær vik­ur. Muharrem Ince, leið­togi Lýð­ræð­is­flokks­ins CHP, fékk 30,7 pró­sent en kjör­stjórn mun ekki birta loka­nið­ur­stöð­urnar úr for­seta­kosn­ing­unum fyrr en á föstu­dag­inn næst­kom­andi.

­Flokkur hans Rétt­læt­is- og þró­un­ar­flokk­ur­inn AK, fékk enn fremur flest atkvæði í þing­kosn­ing­unum en kosið var til þings á sama tíma. Þegar 99 pró­sent atkvæða höfðu verið talin var flokk­ur­inn með 42 pró­sent atkvæða en CHP með 23 pró­sent. Kjör­sókn var góð, eða 87 pró­sent.

Mótmæltu aðgerðaleysi stjórnvalda

[links]Aðgerð­ar­hóp­ur­inn „Hvar er Hauk­ur“ stóð fyrir fána­skiptum á þaki Stjórn­ar­ráðs­ins þann 17. júní síð­ast­lið­inn, af því til­efni að liðið var á fjórða mánuð frá því frétt­ist að því að Hauks Hilm­ars­sonar væri saknað eftir loft­árás Tyrkja á sjálf­stjórn­ar­svæði Kúrda í Sýr­landi. Haukur barð­ist við hlið Kúrda gegn Islamska rík­inu í Raqqa og síðar gegn inn­rás Tyrkja í Afrín. Lík Hauks hefur ekki fund­ist og í raun engin sönnun þess að hann sé lát­inn.

Í frétta­til­kynn­ingu frá hópum sagði að óskum fjöl­skyldu Hauks um að Tyrkir verði krafðir svara um það hvað varð um lík þeirra sem féllu í Afrín hefði utan­rík­is­ráðu­neytið svarað á þann veg að það fylgi ráð­legg­ingum tyrk­nesku lög­regl­unnar og vilji því ekki bera þessa spurn­ingu undir stjórn­völd í Tyrk­landi.

„Enn­fremur telur ráðu­neyt­ið, þrátt fyrir að alþjóð­legi stríðs­glæpa­dóm­stóll­inn í París telji tyrk­nesk stjórn­völd sek um stríðs­glæpi gegn Kúr­dum, að þar sem Tyrkir seg­ist sjálfir fara að alþjóða­lögum á átaka­svæðum sé ekki ástæða til að ótt­ast að líkin liggi enn á víða­vangi.

Ráðu­neytið hefur því ekki feng­ist til að spyrja tyrk­nesk stjórn­völd hvers vegna Rauða kross­inum sé ekki leyft að leita að líkum á svæð­inu. For­sæt­is­ráðu­neytið hefur neitað að taka við mál­inu enda telur for­sæt­is­ráð­herra að Utan­rík­is­ráðu­neytið vinni að því „af heil­ind­um“,“ sagði í til­kynn­ing­unni.

„Ágætur fundur“

Guð­laugur Þór sagði að fundur hans og efna­hags­mála­ráð­herra Tyrk­lands hefði verið ágætur og að gott hefði verið að fá tæki­færi til að ræða þessi mál við Zeybekci. „Ég hef þegar tekið upp mál Hauks Hilm­ars­sonar við varn­ar­mála­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra Tyrk­lands og aðrir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa líka vakið máls á því við erlenda ráða­menn þar sem þess hefur verið kostur. Með komu tyrk­neska ráð­herr­ans hingað til lands gafst okkur enn eitt tæki­færið til að knýja á um frek­ari upp­lýs­ingar og sam­starf í þessu sorg­lega máli,“ sagði ráð­herra eftir fund­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár