Katrín svarar opnu bréfi um hvarf Hauks Hilmarssonar

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur svarað opnu bréfi 400 ein­stak­linga til hennar vegna hvarfs Hauks Hilm­ars­sonar. Segir ekki unnt að afhenda öll gögn vegna trún­aðar um milli­ríkja­sam­skipti og upp­lýs­inga um ein­stak­linga sem geti ógnað öryggi þeirra.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra svarar opnu bréfi sem 400 ein­stak­lingar sendu henni í gær vegna þess sem þau köll­uðu van­rækslu stjórn­valda í máli Hauks Hilm­ars­sonar.

Í svari Katrínar, sem birt er á Facebook síðu hennar kemur fram að mál Hauks hafi verið í algjörum for­gangi hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu frá því það kom upp. „Borg­ara­þjón­usta utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hefur leitað allra leiða til að kom­ast að afdrifum Hauks og lögð hefur verið áhersla á að vinna náið með fjöl­skyldu Hauks.“

[links]Katrín segir að sam­band hafi verið haft við Tyrki í gegnum sendi­herra Tyrk­lands í Osló, íslensk og tyrk­nesk stjórn­völd hafi verið í stöð­ugu sam­bandi og að málið hafi einnig verið tekið upp við utan­rík­is­ráð­herra, varn­ar­mála­ráð­herra og fjöl­skyldu­mála­ráð­herra Tyrk­lands. Þá hafi verið leitað eftir upp­lýs­ingum í gegnum óform­legri sam­skipti, það er í gegnum mann­úð­ar­sam­tök sem aðgangi hafi að svæð­inu. Lög­reglu­yf­ir­völd sem hafi með rann­sókn manns­hvarfa hafi rann­sakað málið í gegnum nor­rænt og evr­ópskt sam­starf og að auki hafi verið haft sam­band við sjö vina­þjóðir til að afla upp­lýs­inga um hvernig staðið sé að svip­uðum borg­ara­þjón­ustu­málum. Katrín sjálf hafi síðan tekið málið upp við Angelu Merkel kansal­ara Þýska­lands sem hún bað um að aðstoða stjórn­völd við málið.

„Því miður hefur enn ekk­ert komið fram sem varpað getur ljósi á hvað orðið hefur um Hauk. Áfram er unnið að mál­inu af alúð og heil­indum innan borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins með þeim úrræðum sem til staðar eru af fullum þunga,“ segir Katrín.

Hún segir ekki unnt að afhenda öll gögn sem til eru um fram­gang máls­ins vegna trún­aðar um milli­ríkja­sam­skipti. Þá inni­haldi sum gögn máls­ins upp­lýs­ingar um ein­stak­linga sem ógnað geti öryggi þeirra. Aðstand­endur Hauks hafi hins vegar verið upp­lýstir um efni og nið­ur­stöðu þeirra sam­skipta eftir því sem kostur hefur verið.

„Íslensk stjórn­völd geta ekki mælt með því að íslenskir rík­is­borg­arar ferð­ist til svæð­is­ins, þar sem þeim getur stafað mikil hætta af þeim átökum sem geisa á svæð­inu. Her­mála­yf­ir­völd, mann­úð­ar­sam­tök og borg­ara­þjón­ustur sam­starfs­ríkja hafa sagt ástandið á svæð­inu mjög óör­uggt og hafa raunar ekki haft aðgang að því um nokk­urra vikna skeið.“

Katrín segir að loku að öll ríki ráði borg­urum sínum frá ferða­lögum til Sýrlands almennt enda sé geta þeirra til að veita borg­ara­þjón­ustu mjög tak­mörkuð. „Ferða­við­var­anir, þar sem varað er við öllum ferðum til Sýrlands vegna ríkj­andi ástands, eru því í fullu gildi.“

Lesa má svar Katrínar í heild sinni hér:

Vegna opins bréfs um mál Hauks Hilm­ars­sonar

Mál Hauks Hilm­ars­sonar hefur verið í algjörum for­gangi hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu frá því það kom upp. Borg­ara­þjón­usta utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hefur leitað allra leiða til að kom­ast að afdrifum Hauks og lögð hefur verið áhersla á að vinna náið með fjöl­skyldu Hauks.

Um leið og fregnir bár­ust af því að Tyrkir kynnu að hafa Hauk í haldi var haft sam­band við Tyrki.

Í fyrsta lagi var það gert í gegnum sendi­herra Tyrk­lands í Osló sem er æðsti full­trúi tyrk­neskra stjórn­valda gagn­vart Íslandi.

Í öðru lagi hafa íslensk og tyrk­nesk stjórn­völd, þ.m.t. her­mála­yf­ir­völd, verið í stöð­ugu sam­bandi eftir ýmsum leiðum frá þeim degi.

Í þriðja lagi hefur mál Hauks hefur verið tekið upp við utan­rík­is­ráð­herra, varn­ar­mála­ráð­herra og fjöl­skyldu­mála­ráð­herra Tyrk­lands. Þær upp­lýs­ingar hafa feng­ist á því að Tyrkir hafi Hauk ekki í haldi og að hans verði leitað meðal lát­inna og særðra á svæð­inu.

Í fjórða lagi hefur verið leitað eftir upp­lýs­ingum í gegnum óform­legri sam­skipti, s.s. við mann­úð­ar­sam­tök sem hafa aðgang að svæð­inu.

Í fimmta lagi hafa lög­reglu­yf­ir­völd, sem fara með rann­sókn manns­hvarfa, rann­sakað málið, m.a. í gegnum nor­rænt og evr­ópskt sam­starf lög­reglu­yf­ir­valda.

Í sjötta lagi hefur verið haft sam­band við sjö vina­þjóðir til að afla upp­lýs­inga um hvernig staðið sé að svip­uðum borg­ara­þjón­ustu­málum. Þessi ríki hafa öll áréttað að staðan sé ein­stak­lega flókin, og erfitt sé að afla upp­lýs­inga og enn erf­ið­ara að veita aðstoð. Aðrar upp­lýs­ingar liggja því miður ekki fyrir að svo stöddu.

Í sjö­unda lagi ræddi ég málið við Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands og bað um aðstoð við að afla upp­lýs­inga um afdrif Hauks. Í kjöl­farið áttu íslenskir emb­ætt­is­menn sam­skipti við þýska emb­ætt­is­menn.

Því miður hefur enn ekk­ert komið fram sem varpað getur ljósi á hvað orðið hefur um Hauk. Áfram er unnið að mál­inu af alúð og heil­indum innan borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins með þeim úrræðum sem til staðar eru af fullum þunga.

Ekki er unnt að afhenda öll gögn sem til eru um fram­gang og nið­ur­stöður íslenskra stjórn­valda á hvarfi Hauks. Ástæður þess eru að trún­aður ríkir um milli­ríkja­sam­skipti. Einnig er það þannig að sum gögn sem tengj­ast máli Hauks inni­halda upp­lýs­ingar um ein­stak­linga sem geti ógnað öryggi þeirra. Aðstand­endur hans hafa hins vegar verið upp­lýstir um efni og nið­ur­stöðu þeirra sam­skipta eftir því sem kostur hefur verið.

Íslensk stjórn­völd geta ekki mælt með því að íslenskir rík­is­borg­arar ferð­ist til svæð­is­ins, þar sem þeim getur stafað mikil hætta af þeim átökum sem geisa á svæð­inu.

Her­mála­yf­ir­völd, mann­úð­ar­sam­tök og borg­ara­þjón­ustur sam­starfs­ríkja hafa sagt ástandið á svæð­inu mjög óör­uggt og hafa raunar ekki haft aðgang að því um nokk­urra vikna skeið.

Öll ríkin ráða borg­urum sínum frá ferða­lögum til Sýrlands almennt enda er geta þeirra til að veita borg­ara­þjón­ustu mjög tak­mörkuð. Ferða­við­var­anir, þar sem varað er við öllum ferðum til Sýrlands vegna ríkj­andi ástands, eru því í fullu gildi.

Katrín Jak­obs­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár