Tyrkneski fáninn dreginn að húni á Stjórnarráðinu

Aðgerð­ar­hóp­ur­inn „Hvar er Haukur“ stóð fyrir fána­skiptum á þaki Stjórn­ar­ráðs­ins í dag, af því til­efni að nú er liðið á fjórða mánuð frá því frétt­ist að því að Hauks Hilm­ars­sonar væri saknað eftir loft­árás Tyrkja á sjálf­stjórn­ar­svæði Kúrda í Sýrlandi.

Aðgerð­ar­hóp­ur­inn „Hvar er Haukur“ stóð fyrir fána­skiptum á þaki Stjórn­ar­ráðs­ins í dag, af því til­efni að nú er liðið á fjórða mánuð frá því frétt­ist að því að Hauks Hilm­ars­sonar væri saknað eftir loft­árás Tyrkja á sjálf­stjórn­ar­svæði Kúrda í Sýrlandi. Haukur barð­ist við hlið Kúrda gegn Islamska rík­inu í Raqqa og síðar gegn inn­rás Tyrkja í Afrín. Lík Hauks hefur ekki fund­ist og í raun engin sönnun þess að hann sé lát­inn.

[links]Í frétta­til­kynn­ingu frá hópum segir að óskum fjöl­skyldu Hauks um að Tyrkir verði krafðir svara um það hvað varð um lík þeirra sem féllu í Afrín hafi utan­rík­is­ráðu­neytið svarað á þann veg að það fylgi ráð­legg­ingum tyrk­nesku lög­regl­unnar og vilji því ekki bera þessa spurn­ingu undir stjórn­völd í Tyrk­landi.

„Enn­fremur telur ráðu­neytið, þrátt fyrir að alþjóð­legi stríðs­glæpa­dóm­stóll­inn í París telji tyrk­nesk stjórn­völd sek um stríðs­glæpi gegn Kúrdum, að þar sem Tyrkir seg­ist sjálfir fara að alþjóða­lögum á átaka­svæðum sé ekki ástæða til að ótt­ast að líkin liggi enn á víða­vangi. Ráðu­neytið hefur því ekki feng­ist til að spyrja tyrk­nesk stjórn­völd hvers vegna Rauða kross­inum sé ekki leyft að leita að líkum á svæð­inu. For­sæt­is­ráðu­neytið hefur neitað að taka við mál­inu enda telur for­sæt­is­ráð­herra að Utan­rík­is­ráðu­neytið vinni að því „af heil­indum“,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Hópurinn segir fram­göngu fána­skipta­gjörn­ing­inn kall­ast á við fána­að­gerð á vegum anar­kista fyrir réttum 10 árum, en þá flagg­aði Haukur Hilm­ars­son bylt­ing­ar­fána Jörundar Hunda­daga­kon­ungs á þaki Stjórn­ar­ráðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár