Ræddu um stjórnmálaástandið á Íslandi og mál Hauks Hilmarssonar

Katrín Jak­obs­dóttir og Angela Merkel fund­uðu í Berlín í dag.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fund­aði í dag með Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands. Á þeim fundi ræddu þær meðal ann­ars útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu, stjórn­mála­á­standið á Íslandi og mál Hauks Hilm­ars­sonar.

Í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu segir að þær hafi einnig rætt sam­skipti þjóð­anna, stöðu stjórn­mála í Þýska­landi nú þegar ný rík­is­stjórn hefur tekið við og ýmis mál­efni á alþjóða­vett­vangi. „Fjölluðu þær m.a. um mann­rétt­inda­mál, jafn­rétti kynj­anna, mál­efni flótta­fólks og hæl­is­leit­enda, varn­ar­mál, umhverf­is­mál, mál­efni norð­ur­skauts­ins, menn­ing­ar­mál­efni og áhuga Þjóð­verja á Íslandi, sem m.a. end­ur­spegl­ast í fjölda þýskra ferða­manna hér á landi.“

Katrín segir að fund­ur­inn hafi verið gagn­legur. „Það er mik­il­vægt fyrir okkur Íslend­inga að rækta okkar góðu sam­skipti við Þýska­land á tímum áskor­ana og breyt­inga á alþjóða­vett­vangi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár