Umboðsmaður Alþingis fjallar um tjáningarfrelsi opinberra starfsmanna

Af og til ber­ast umboðs­manni Alþingis kvart­anir um að stjórn­endur opin­berra stofn­ana hafi með afskiptum sínum tak­markað tján­ing­ar­frelsi starfs­­manna.

Kjartan Bjarni Björgvinsson settur umboðsmaður Alþingis.
Kjartan Bjarni Björg­vins­son settur umboðs­maður Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Umboðs­maður Alþingis hefur ákveðið að ekki sé rétt að halda áfram almennri athugun á því hvort brotið sé á tján­ing­ar­frelsi opin­berra starfs­manna í ljósi þess að nú hafa verið lög­festar ákveðnar reglur um tján­ing­ar­frelsi opin­berra starfs­manna og heim­ilar tak­mark­anir á því. Þetta kemur fram í grein sem birt­ist á vef umboðs­manns Alþingis í gær.

Samkvæmt umboðs­manni er rétt að bíða og sjá hver reynslan verður af lög­fest­ingu nýs ákvæðis um tján­ing­ar­frelsi opin­berra starfs­manna í stjórn­sýslu­lög­unum. „Fram­kvæmd á heim­ildum opin­berra starfs­manna til að tjá sig um mál­efni á starfs­sviði þeirra og tak­mark­anir á þeim í með­förum stjórn­valda heyra undir eft­ir­lit umboðs­manns með stjórn­sýsl­unni og þeir sem telja til­efni til geta komið á fram­færi við hann kvört­unum og ábend­ingum,“ skrifar hann.

Álitamál hvort stjórnendur hafi takmarkað tjáningarfrelsi starfsmanna

Í grein­inni kemur fram að af og til hafi umboðs­manni borist ábend­ingar og kvart­anir þar sem álita­málið sé hvort stjórn­endur opin­berra stofn­ana hafi með afskiptum sínum og inn­gripum tak­markað stjórn­ar­skrár­bundið tján­ing­ar­frelsi starfs­­manna þeirra.

Dæmi um þetta séu til­vik þar sem starfs­maður greinir frá því að stjórn­endur hafi tjáð honum að það væri heppi­legra að upp­lýs­inga­full­trúi stofn­un­ar­innar svar­aði fyr­ir­spurnum um skort á þjón­ustu stofn­un­ar­innar sem starfs­mað­ur­inn telur að rekja megi til van­kanta í starfi og skipu­lagi starf­semi stofn­un­ar­innar. Í ábend­ingum til umboðs­manns hafi komið fram að starfs­menn telja að með þessu hafi verið lagður steinn í götu þess að þeir geti tjáð sig um þá van­kanta sem þeir telja vera til staðar í starf­sem­inni og um óánægju starfs­manna.

Greinir hann frá því að eitt mál af þessu tagi hafi komið til fyrir nokkru síðan og verið honum til­efni til þess að huga að því hvort rétt væri að fjalla almennt í formi frum­kvæð­is­máls um tján­ing­ar­frelsi opin­berra starfs­manna við þessar aðstæður.

„Þar hafði komið fram í fréttum að stjórn­endur sveit­ar­fé­lags hefðu til­kynnt for­stöðu­mönnum til­tek­inna starfsein­inga að þeir ættu ekki að svara fyr­ir­spurn fjöl­mið­ils um til­tekið mál­efni heldur vísa þeim á upp­lýs­inga­full­trúa sveit­ar­fé­lags­ins. Í svari þess til umboðs­manns kom fram að í þessu til­viki hefði fyr­ir­spurn fjöl­mið­ils verið beint til margra for­stöðu­manna hlið­stæðra starfsein­inga og því hafi verið talið rétt að taka þessar upp­lýs­ingar í heild saman af hálfu sveit­ar­fé­lags­ins og tryggja þannig sam­ræmi og að þær væru réttar. Sveit­ar­fé­lagið lýsti því að það teldi að með þessu hefði tján­ing­ar­frelsi starfs­manna stofn­un­ar­innar ekki verið settar neinar skorður enda hefðu þetta bara verið til­mæli en ekki reglur. Einu tak­mark­an­irnar sem starfs­menn þurfi að þola á tján­ing­ar­frelsi sínu sé vegna trún­aðar­yfir­lýs­inga og skyldna sem megi leiða af lögum,“ skrifar hann.

Mál sem þessi komið til umfjöllunar hjá umboðsmönnum á Norðurlöndunum

Eftir að hafa fengið þessar skýr­ingar taldi umboðs­maður ekki til­efni til þess að fjalla sér­stak­lega um þetta ein­staka mál. Fram kemur hjá umboðs­manni að atvik í því hafi þó áfram verið hluti af almennu eft­ir­liti af hálfu umboðs­manns með til­vikum þar sem álita­mál kunni að hafa verið uppi um að stjórn­endur hins opin­bera hefðu tak­markað tján­ing­ar­frelsi starfs­manna.

„Var þá líka haft í huga að mál af þessum toga hafa í nokkru mæli komið til umfjöll­unar hjá umboðs­mönnum þjóð­þing­anna á Norð­ur­lönd­unum og þá meðal ann­ars í tengslum við skrif opin­berra starfs­manna í dag­blöðum og á sam­fé­lags­miðlum. Við þetta eft­ir­lit umboðs­manns Alþingis hafa ekki komið fram dæmi í sam­bæri­legu umfangi og að stjórn­endur hafi gengið jafn langt í afskiptum sínum og sést hafa í eft­ir­liti umboðs­manna á hinum Norð­ur­lönd­unum. Vegna þeirra tak­mark­ana sem verið hafa á því að umboðs­maður Alþingis gæti sinnt frum­kvæð­is­at­hug­unum síð­ustu ár og þar með beinum athug­unum á vett­vangi stjórn­valda er þó rétt að fara var­lega í að draga of miklar álykt­anir af þessu um stöð­una hér á landi að þessu leyti,“ skrifar hann.

Ekkert lagaákvæði um tjáningarfrelsi opinberra starfsmanna á þessum tíma

Bendir umboðs­maður á að þegar ofan­greint mál varð umboðs­manni til­efni fyr­ir­spurnar til stjórn­valda hafi ekki notið við sér­stakra laga­á­kvæða um tján­ing­ar­frelsi opin­berra starfs­manna umfram hið almenna tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði í stjórn­ar­skránni. „Það ákvæði nær til tján­ingar opin­berra starfs­manna og bindur stjórn­völd í sam­skiptum við starfs­menn sína,“ skrifar hann og bætir því við að meg­in­reglan sé því sú að opin­berir starfs­menn eigi rétt á að láta í ljós hugs­anir sínar án afskipta stjórn­valda, með þeim tak­mörk­unum sem fram koma fram í stjórn­ar­skránni, en þar segir: „Tján­ing­ar­frelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu alls­herj­ar­reglu eða öryggis rík­is­ins, til verndar heilsu eða sið­gæði manna eða vegna rétt­inda eða mann­orðs ann­arra, enda telj­ist þær nauð­syn­legar og sam­rým­ist lýð­ræð­is­hefðum.“

Á árinu 2019 var aftur á móti nýr kafli um tján­ing­ar­frelsi og þagn­ar­skyldu tek­inn upp í stjórn­sýslu­lögum. Þar er nú kveðið á um að hver sá sem starfar á vegum ríkis eða sveit­ar­fé­laga hafi frelsi til að tjá sig opin­ber­lega um atriði er tengj­ast starfi hans, svo fremi sem þagn­ar­skylda eða trún­aðar- og holl­ustu­skyldur standi því ekki í vegi, að því er fram kemur í grein­inni.

„Í athuga­semdum við ákvæðið í frum­varpi til lag­anna er tekið fram að ljóst sé að trún­aðar- og holl­ustu­skyldur komi ekki í veg fyrir að opin­berum starfs­mönnum sé að ákveðnu marki heim­ilt að setja fram gagn­rýni á atriði innan síns starfs­sviðs. Af þessu leiði einnig að yfir­mönnum stofn­ana sé óheim­ilt í skjóli stjórn­un­ar­heim­ilda sinna að setja tján­ing­ar­frelsi starfs­manna sinna þrengri skorður en leiðir af þessum reglum. Þá er áréttað að tján­ing opin­berra starfs­manna, þar á meðal sú gagn­rýni sem þeir setja fram, sé ákaf­lega mik­il­væg hinni lýð­ræð­is­legu umræðu vegna þeirrar reynslu, inn­sýnar og sér­þekk­ingar sem þeir búa yfir [...].“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tjáningarfrelsi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár