Mænusótt snýr aftur

Þrátt fyrir jákvæð teikn á lofti um að mænu­sótt myndi brátt heyra sög­unni til þá bár­ust þau tíð­indi fyrir skömmu að veiran hefði greinst í Venes­ú­ela.

Mænusótt (löm­un­ar­veiki) er veiru­sjúk­dómur sem polioveiran veldur. Þó sýk­ingin lýsi sér í flestum til­fellum sem flensa lendir 1 af hverjum 1000 sem smit­ast af veirunni í því að veiran leggst á tauga­kerfið og getur hún valdið lömun.

Fyrir tæpum tveimur árum voru jákvæð teikn á lofti um að veiran heyrði brátt sög­unni til, þökk sé góðum árangri bólu­setn­inga. Hér á Íslandi hefur ekki komið upp til­fellu mænu­sóttar í háa herr­ans tíð, enda er bólu­setn­ing gegn veirunni ókeypis fyrir ung­börn.

Því miður ætlar það að reyn­ast þrautin þyngri að losna alfarið við þennan vágest. En í síð­ustu viku bár­ust okkur sorg­legar fréttir, þegar fyrsta mænu­sótt­ar­til­fellið síðan 1989 greind­ist í Delta Amacuro, einu af 23 ríkjum Venes­ú­ela.

Þó hér sé aðeins um eitt til­felli að ræða þá er stað­setn­ing þess ógn­vekj­andi. Hingað til hafa mænu­sótt­ar­til­felli, þó fá séu, helst verið að grein­ast í tveimur löndum, Pakistan og Afganistan en þar hefur bólu­setn­ingum einmitt verið ábóta­vant.

Nú er svo komið að Venes­ú­ela er að kom­ast í sama hóp og ofan­talin lönd hvað varðar bólu­setn­ing­ar­tíðni. Í Delta Amacuro hér­aði hefur bólu­setn­ing­ar­tíðni dottið niður í 67% og sam­hliða því hefur til­fellum misl­inga, berkla og fleiri sýk­inga fjölgað.

Ástæðan er því miður, eins og svo oft áður, fjár­skortur. Venes­ú­ela hefur verið að ganga í gegnum skarpa nið­ur­sveiflu í efna­hags­málum og hefur fyr­ir­byggj­andi heil­brigð­is­þjón­usta beðið heil­mikla hnekki af því. Ung­barna­bólu­setn­ingar eru nú af skorn­ari skammti en áður og afleið­ingar eftir því.

Þó hér sé um ein­stak­lega sorg­leg tíð­indi að ræða vonum við að þetta verði til þess að opna augu stjórn­valda fyrir því hversu mikil hætta er fyrir höndum. Þegar upp er staðið spar­ast litlar fjár­hæðir með því að skerða grunn­heil­brigð­is­þjón­ustu og allra síst með því að skerða fyr­ir­byggj­andi aðgerðir gegn sjúk­dómum.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár