Guðmundur Kristjánsson nýr forstjóri HB Granda

Meiri­hluti stjórnar útgerð­ar­fé­lags­ins HB Granda valdi Guðmund Krist­jáns­son sem for­stjóra fyrr í dag.

HB Grandi.
HB Grandi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Meiri­hluti stjórnar HB Granda hefur valið núver­andi stjórn­ar­for­mann Guðmund Krist­jáns­son sem for­stjóra útgerð­ar­fé­lags­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Kaup­hall­ar­innar fyrr í dag.

[links]Í til­kynn­ing­unni segir að meiri­hluti stjórnar félags­ins hafi tekið ákvörð­un­ina á fundi í dag sam­hliða ákvörðun um gerð starfs­loka­samn­ings fyrir Vilhjálm Vil­hjálms­son, frá­far­andi for­stjóra félags­ins. Í kjöl­farið skipti stjórn með sér verkum á ný og var Magnús Gúst­afs­son kjör­inn nýr stjórn­ar­for­maður.

Guð­mundur Krist­jáns­son er fyrr­ver­andi for­stjóri útgerð­ar­fé­lags­ins Brims, en eins og Kjarninn hefur greint frá keypti hann 34,1% eign­ar­hlut Krist­jáns Lofts­sonar og Halldórs Teits­sonar í HB Granda. Kaupin námu tæp­lega 21,7 millj­örðum króna. [adspot]

Guð­mundur bauð sig svo fram í stjórn félags­ins, en var val­inn stjórn­ar­for­maður á aðal­fundi HB Granda þann 4. maí síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár