Risavaxin viðskipti Guðmundar Kristjánssonar í Granda

For­stjóri Brims hefur keypt eign­ar­hlut Krist­jáns Lofts­sonar í HB Granda.

Guðmund­ur Krist­jáns­son, for­stjóri út­gerð­arfé­lags­ins Brims, hef­ur keypt 34,1% eign­ar­hlut Krist­jáns Lofts­son­ar og Hall­dórs Teits­son­ar í HB Granda.

Heild­ar­upp­hæð við­skipt­anna nem­ur tæp­lega 21,7 millj­örðum króna, en mark­aðsvirði HB Granda við lokun mark­aða í gær nam 54,7 millj­örðum króna.

Kristján og Hall­dór eru báðir stjórn­ar­menn í HB Granda. Þeir áttu eign­ar­hlut­inn í gegn­um fé­lög­in Vog­un hf. og Fiski­veiða­hluta­fé­lagið Ven­us hf. Þeir hafa verið stærstu ein­stöku eig­endur félags­ins, en Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er næst stærsti hlut­haf­inn með 13,6 pró­sent hlut.

Vog­un hf. átti tæpa 611 millj­ón hluti í HB Granda og Fiski­veiði­hluta­fé­lagið Ven­us hf. átti tæp­lega 9,1 millj­ón hluti.

Kaup­verðið var 35 krón­ur á hlut.

Eft­ir við­skipt­in á Kristján Lofts­son, sem er einnig stjórn­ar­for­maður Hvals hf., 249 þús­und hluti í HB Granda en Hall­dór eng­an.

Af­hend­ing hlut­anna skal fara fram inn­an 30 daga við greiðslu kaup­verðs, en til­kynn­ing um við­skiptin hefur verið send til kaup­hall­ar­innar.

Þetta er með umfangs­mestu við­skiptum með hlutafé á skráðum mark­aði hér á landi, á und­an­förnum ára­tug, en HB Grandi er eina sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið sem skráð er á markað.

Eigin fé HB Granda nam í lok árs í fyrra 257 millj­ónum evra, eða sem nemur um 35 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár