Yfirtaka á HB Granda yrði stór biti

Til­kynn­ingin um kaupa Guð­mundar Krist­jáns­sonar á ríf­lega 34 pró­sent hlut í HB Granda koma mörgum fjár­festum á óvart, ekki síst innan íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Svo gæti farið að margir hlut­hafar ákveði að selja hluti sína, þvert á vilja Guð­mundar.

Kristján Loftsson, sem hefur verið burð­ar­rásin í hlut­hafa­hópi HB Granda í ára­tugi, fékk á dög­unum til­boð í hlut sinn í félag­inu sem hann taldi of gott til að hafna því.

Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og aðal­eig­andi Brims, gerði til­boðið í hluta­féð, og voru til­kynn­ingar sendar um það til Nasdaq kaup­hallar Íslands, eins og greint hefur verið frá.

Það var sam­tals upp á 21,7 millj­arða króna og í 34,1 pró­sent hlut í HB Granda, en hluta­féð var að mestu leyti Hvals, sem er að miklu leyti í eigu Krist­jáns Lofts­sonar, og félag­anna Vogunar og Venusar, og síðan einnig Halldórs Teits­sonar. Þeir eiga báðir sæti í stjórn HB Granda.

Yfir­töku­skylda mynd­að­ist við þessi við­skipti og er Guðmundi skylt að gera hlut­höfum til­boð um kaup á því verði sem um ræðir í við­skipt­unum. Yfir­töku­skyldan mynd­ast við yfir­ráð yfir 30 pró­sent hlut í skráðu félagi.

Verðið í við­skipt­unum fyrr­nefndu var 16 pró­sentum yfir þáver­andi mark­aðs­gengi félags­ins, en strax á fyrsta við­skipta­degi eftir að til­boðið var gert opin­bert hækk­aði gengi HB Granda um 11 pró­sent og svo aftur um lítið eitt í gær. Mark­aðsvirði félags­ins hefur auk­ist um 6 millj­arða frá því að til­kynnt var um fyrr­nefnd við­skipti.

Þetta eru um margt áhuga­verð við­skipti, ekki síst í ljósi þess að þau eru meðal þeirra umfangs­mestu frá því að hluta­bréfa­mark­að­ur­inn var end­ur­reistur fyrir bráðum ára­tug. Þá verður það að telj­ast sögu­legt að Kristján Loftsson hverfi úr fram­varða­sveit hlut­hafa félags­ins, eftir ára­tuga veru þar, en hann mun þó eiga lít­inn hlut í félag­inu, sem nemur um 10 millj­ónum króna miðað við núver­andi gengi.

Nokkrir hlutir eru for­vitni­legir í þessu sam­hengi.

- Aðrir hlut­hafar þurfa að fara í gegnum sömu hugs­anir og Kristján Loftsson, og velta því fyrir sér hvort þetta er gott til­boð eða ekki. Ekki væri óeðli­legt ef hlut­hafar myndu ákveða að selja, í ljósi þess að Kristján taldi þetta það gott til­boð, og síðan gætu líf­eyr­is­sjóðir lands­manna, sem eru meðal stærstu hlut­hafa, hagn­ast veru­lega á söl­unni. Sé sér­stak­lega horft til líf­eyr­is­sjóð­anna þá getur einnig verið fýsi­legt fyrir þá að vera hlut­hafar í félag­inu áfram, enda rekstr­ar­saga HB Granda traust og árang­urs­mikil, til langs tíma litið. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna á 13,66 pró­sent hlut í félag­inu og er næst stærstur hlut­hafa. Sam­an­lagt eiga fjórir líf­eyr­is­sjóðir, það er Gildi, LSR og Birta auk Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna, tæp­lega þriðj­ungs­hlut í félag­inu.

Stórar spurningar sem þarf að svara

- Ef félagið verður yfir­tekið þá þýðir það að Guð­mundur þyrfti að fjár­magna 65 millj­arða við­skipti, og ef það á að vera trú­verð­ug­leiki að baki til­boð­unum þá þarf að fjár­magna þau öll fyrir fram. Við­mæl­endur Kjarnans sögðu umfang við­skipt­anna vera mikið, og að það yrði ekki auð­sótt að fjár­magna þau, ef margir hlut­hafar myndu ákveða að selja.

Fjár­mála­eft­ir­litið, Sam­keppn­is­eft­ir­litið og Fiski­stofa eru nú að skoða þau álita­mál sem vakna við þessi við­skipti, er varða áhrifin á lögin sem eft­ir­lits­stofn­an­irnar hafa eft­ir­lit með. Það er hluti af hinum form­lega feril. Mun reyna á hámarks­eign í kvóta? Er þetta of mikil sam­þjöppun sam­kvæmt sam­keppn­is­lögum? Og svo fram­vegis. Þessum spurn­ingum þarf að svara.

Guð­mundur sagði í við­tali við Morg­un­blaðið að hann væri að fjár­magna kaupin á hlut Krist­jáns og Halldórs með aðkomu lána­stofn­anna. Ef það á að vera fullur trú­verð­ug­leiki að baki þessum til­boðum í afgang­inn af hlutafé HB Granda, í ljósi skil­yrða um yfir­töku­skyldu, þá þyrfti að vera búið að fjár­magna yfir­tök­una. Ljóst er að það er mikið verk­efni að leysa.

Koma ríkisbankarnir að fjármögnun?

- Skatt­greið­endur gætu átt tölu­vert undir, þar sem ríkið á bæði Lands­bank­ann og Íslands­banka, og raunar um 80 pró­sent af fjár­mála­kerf­inu. Heild­ar­upp­hæðin, 65 millj­arðar, nemur um fjórð­ungi af eig­in­fjár­stöðu Lands­bank­ans, svo dæmi sé tekið. Erfitt er að segja til um hversu mikil aðkoma lána­stofn­anna verður en óbeint má segja, að ríkið komi að þessum við­skiptum, það er ef annar hvor þess­ara banka kemur að fjár­mögn­un­inni.

Eigið fé Brims var rúm­lega 20 millj­arðar í lok árs 2016 og þrátt fyrir háar fjár­hæðir og digra sjóði, þá er þetta stór biti. Enda sam­svarar yfir­töku­upp­hæðin öllu mark­aðsvirði VÍS, Trygg­ing­ar­mið­stöðv­ar­innar og Origo, sem einnig eru skráð á markað.

Staðan mun hins vegar skýr­ast á næst­unni, og að öllum lík­indum fyrir aðal­fund félags­ins sem fram fer 4. maí. Líf­eyr­is­sjóðir eru stórir hlut­hafar, eins og áður segir, en þeir hafa ekki enn fengið nein til­boð í hluti sína, sam­kvæmt svörum frá þeim. Vænt­an­lega koma þau innan tíðar, enda tekur tíma að ganga frá málum sem þessum, og frest­ur­inn er 30 dagar frá því yfir­töku­skylda mynd­ast.

- Guð­mundur hefur ekki hikað við að stækka útgerð­ar­veldi sitt þegar tæki­færin til þess koma. Að því leyt­inu til kemur það ekki á óvart að hann sé að hugsa stórt, en til­kynn­ingin um kaupin kom þó mörgum á óvart, en ekki síst hjá líf­eyr­is­sjóð­unum.

Guð­mundur og aðilar tengdir honum á eiga um þriðj­ungs­hlut í Vinnslu­stöð­inni en hann hefur lengi átt í deilum við aðra hlut­hafa, og neit­aði hann að stað­festa árs­reikn­ing Vinnslu­stöðv­ar­innar fyrir árið 2017, einn stjórn­ar­manna. Í lok árs 2017 var eig­in­fjár­hlut­fall Vinnslu­stöðv­ar­innar 32 pró­sent og greiddi félagið tæp­lega einn millj­arð í arð til hlut­hafa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár