Sjö í framboði til stjórnarsetu í HB Granda

Guð­mundur Krist­jáns­son býður sig fram í stjórn. Eggert B. Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri HB Granda, gerir það einnig.

Sjö hafa til­kynnt um fram­boð sitt til setu í stjórn HB Granda en fimm eiga sæti í stjórn­inni í dag. Aðal­fundur félags­ins fer fram 4. maí.

Þau sjö sem hafa til­kynnt um fram­boð til setu í stjórn­inni eru Albert Þór Jónsson, við­skipta­fræð­ingur, Anna G. Sverr­is­dóttir, Eggert Benedikt Guð­munds­son, sem var um tíma for­stjóri HB Granda, Guð­mundur Krist­jáns­son, Magnús M.S. Gúst­afs­son, Óttar Guð­jóns­son og Rannveig Rist.

Eins og greint hefur verið frá, þá keypti Guðmund­ur Krist­jáns­son, for­stjóri út­gerð­arfé­lags­ins Brims, 34,1% eign­ar­hlut Krist­jáns Lofts­son­ar og Hall­dórs Teits­son­ar í HB Granda.

Heild­ar­upp­hæð við­skipt­anna nem­ur tæp­lega 21,7 millj­örðum króna. Við kaupin mynd­að­ist yfir­töku­skylda, og en miðað er við 30 pró­sent eign­ar­hlut þegar yfir­ráð í skráðum félögum er ann­ars vegar. Ekki er ljóst enn hversu umfangs­mikil við­skiptin verða á end­anum, en 30 daga frestur er gef­inn til að gefa öðrum hlut­höfum til­boð, eftir að yfir­töku­skyldan mynd­ast.

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru eig­endur um 40 pró­sent hluta­fjár, en lík­legt er að þeir selji ekki hlut sinn í félag­inu. Mark­aðsvirði HB Granda er nú 62,7 millj­arðar en til­boð Guð­mundar gerði ráð fyrir verð­miða upp á 65 millj­arðar króna.

Kristján og Hall­dór eru báðir stjórn­ar­menn í HB Granda, en ásamt þeim sitja þau Rannveig Rist, Anna G. Sverr­is­dóttir og Hanna Ásgeirs­dóttir einnig í stjórn­inni.

Ljóst er því að umtals­verðar breyt­ingar verða á stjórn félags­ins þar sem þrír stjórn­ar­menn af fimm munu hætta í stjórn.

HB Grandi er eina sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið sem skráð er á markað og nam eigið fé þess tæp­lega 250 millj­ónum evra í lok árs í fyrra, eða sem nemur um 37 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár