Rannveig skipuð aðstoðarseðlabankastjóri

Katrín Jak­obs­dóttir hefur ákveðið að skipa Rann­veigu Sig­urð­ar­dóttur hag­fræð­ing sem aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra.

Rannveig Sigurðardóttir
Rannveig Sig­urð­ar­dóttir Mynd: Samsett mynd

Rannveig Sig­urð­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri hag­fræði- og pen­inga­stefnu­sviðs Seðla­banka Íslands, hefur verið skipuð í emb­ætti aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra af Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Þetta kemur fram á heima­síðu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, en Mark­að­ur­inn í Frétta­blað­inu greindi fyrst frá. [adspot]

Kjarninn hefur áður fjallað um umsókn til aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra en alls sóttu tólf manns um stöð­una þegar hún var aug­lýst í febr­úar á þessu ári.

[links]Meðal þeirra voru fimm umsækj­endur taldir hæf­astir, en auk Rann­veigar voru þau dr. Daníel Svav­ars­son, for­stöðu­maður hag­fræði­deildar Lands­banka Íslands, Guðrún Johnsen, lektor og dokt­or­snemi í hag­fræði, Jón Þór Sig­ur­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri alþjóða­sam­skipta við SÍ og Þor­steinn Þor­geirs­son, ráð­gjafi seðla­banka­stjóra talin með í þeim flokki

Rannveig útskrif­að­ist sem hag­fræð­ingur frá Gauta­borg­ar­há­skóla í Svíþjóð árið 1990, en hún hefur unnið sem hag­fræð­ingur hjá Seðla­bank­anum síðan árið 2002. Rannveig verður ráðin til fimm ára, en hún hefur störf þann fyrsta júlí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár